Go to content

Leiðbeiningar um lestur

Í tengslum við greininguna eru skilgreind fjögur miðlæg svið, þar sem komið hefur í ljós að gildandi skattasamningur ásamt tvíhliða samningum og framkvæmd þeirra hindra samþættingu og hreyfanleika á norrænum vinnumarkaði:
  • Föst starfsstöð vegna heimavinnu
  • Skráningarskylda atvinnurekanda í fleiri en einu landi
  • Skattlagning launatekna vegna starfs í öðru norrænu landi
  • Skattlagning lífeyristekna o.fl. vegna starfs í öðru norrænu landi
Greiningin fylgir á eftirfarandi blaðsíðum. Í upphafi greiningarkaflans er gerð grein fyrir meginniðurstöðum greiningarinnar og almennum tillögum. Þetta er gert til að skapa yfirsýn og sýna tengslin milli ólíkra sviða og lausna.
Að loknum inngangi er farið yfir hvert svið vandans fyrir sig. Þar köfum við dýpra í inntakið og fjöllum nánar um ýmsar áskoranir og lausnir. Fyrir hvert svið er því lýst hvernig og í hve miklum mæli gildandi reglur á viðkomandi sviði draga úr hreyfanleika í dag. Þar á eftir er lögð til lausn. Fyrir hverja lausn er lýst hugsanlegum ávinningi fyrir einstaklinga/fyrirtæki og afleiðingum lausnarinnar fyrir löndin (hvað varðar skatttekjur og stjórnsýslu). Í tillögunum er sjónum beint að því hvernig best megi tryggja hreyfanleika á norrænum vinnumarkaði. Þegar upp er staðið er það síðan pólitískt mat hvort ávinningurinn vegi upp á móti hugsanlegum afleiðingum fyrir löndin.
Skattamál eru flókið svið. Í skýrslunni er reynt að orða innganginn að greiningunni – þ.m.t. meginniðurstöður og almennar tillögur – á eins einfaldan og skiljanlegan hátt og hægt er. Í lýsingum á hverju sviði fyrir sig er stundum þörf á tæknilegum lýsingum, sem kunna að vera torskildar án forskilnings á skattatæknilegum atriðum.