Go to content

Afmörkun og áhersluatriði

  1. Í þessari skýrslu er einblínt á skattaleg vandamál sem tengjast fjarvinnu og og fjarvinnu að hluta og aðra löggjöf sem við höfum greint sem hindranir fyrir hreyfanleika. Við fjöllum ekki um tengd atriði á borð við vinnuverndarreglur fyrir heimastarfsstöðvar eða vandamál sem tengjast greiðslum frá almannatryggingum, skattlagningu hagnaðar vegna sölu á eignum o.s.frv.
  2. Í sambandi við umræðu- og umsagnarferlið hafa margir kallað eftir raunverulegum útreikningum á því hvernig skipting skatttekna yrði fyrir og eftir innleiðingu lausnanna. Það er mat KPMG, að með sanngjörnu uppgjörsfyrirkomulagi milli landanna yrði um að ræða óverulegar breytingar á skiptingu skattanna. Sérstaklega er litið svo á að umfang breytinga á skiptingunni yrði smávægilegt samanborið við ávinning atvinnurekenda og launafólks alls staðar á Norðurlöndum.
  3. Ýmsir aðilar, meðal annars ráðuneyti, hafa kallað eftir aðkomu skattyfirvalda og ráðuneyta í löndunum. Þau gætu að vísu sannreynt lausnirnar og bent á hugsanleg vandamál við innleiðingu þeirra. Vilji hefur þó staðið til þess að setja fram eins metnaðarfullar lausnir og hægt er til að hámarka norrænt notagildi þeirrar umræðu sem ráðherrarnir munu eiga í framhaldinu. Frá okkar sjónarhorni verður innleiðingin ekki í sjónmáli fyrr en seinna í ferlinu þegar ráðherrarnir hafa rætt möguleikana og ráðfært sig við þau ráðuneyti sem málið varðar.