Go to content

Aðferðir og ferli

Samantekt fyrirliggjandi gagna

Með áherslu á að greina helstu vandamál sem hindra hreyfanleika á norrænum vinnumarkaði, völdu KPMG og Resonans Nordic mikilvægustu greiningar og úttektir sem gerðar hafa verið á sviðinu og gerðu heildarsamantekt af þeim:
Samantektin er gerð með áherslu á að greina mikilvægustu sviðin þar sem í dag koma upp hindranir fyrir hreyfanleika. Við lýsingu á einstökum sviðum hafa KPMG og Resonans Nordic stuðst við ofangreindar skýrslur og aðrar skriflegar heimildir eftir þörfum. Allar heimildir eru tilgreindar neðanmáls í skýrslunni.

Drög að skýrslu

Úrlausnarefni og tillögur eru mótuð af Fredrik Lundgren, meðeiganda hjá KPMG Acor Tax, sem hefur unnið með norræna skattasamninginn í 20 ár og getur að auki nýtt sér þekkingu og reynslu skattasérfræðinga KPMG í öllum norrænu löndunum. Drögin fóru í gegnum eftirfarandi umræðu- og umsagnarferli.

Umræðu- og umsagnarferli

Fjallað var um drög að skýrslunni á fjórum umræðufundum í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku og í skriflegu umsagnarferli á Íslandi, Álandseyjum og í Grænlandi (ekki var hægt að framkvæma umsagnarferli í Færeyjum). Áherslan var á að fá staðfest að þær ábendingar um vandamál sem eru teknar upp í þessari skýrslu séu réttmætar og að lausnirnar sem lagðar eru til muni auðvelda stjórnsýslu og auka gegnsæi í skattamálum þegar einstaklingur eða fyrirtæki vinnur fjarvinnu eða fjarvinnu að hluta á Norðurlöndum.
Fulltrúar landanna í Stjórnsýsluhindranaráðinu ákváðu hverjum skyldi boðið til fundanna í löndunum eða til umsagnarferlis í heimalandinu. Eina krafa verkefnishópsins var að stéttarfélög og samtök atvinnurekenda skyldu eiga fulltrúa á breiðum grundvelli. Sjá nánar í viðauka um umræðufundi og umsagnarferli í löndunum.

Lokaskýrsla

Að umræðufundum og umsagnarferlum loknum var skýrslan uppfærð á grundvelli þeirra uppbyggilegu athugasemda sem komu fram á umræðufundum og í umsagnarferlum.