RANNSÓKNARNET LEITAR LAUSNA FYRIR NORÐURSLÓÐIR

kort case 1.png
FINLAND, SVÍÞJÓÐ, NOREGUR, RÚSSLAND
Norræna rannsóknarnetið Arctic Change Network rannsakar breytingar á norðurslóðum út frá kynjasjónarmiðum. Markmiðið er að efla samstarf vísindamanna við mismunandi háskóla og auka við þekkingu á þeim áskorunum sem eru til staðar á svæðinu.
Fræðimönnum við þrjá mismunandi háskóla var árið 2013 úthlutað styrk frá Norræna jafnréttissjóðnum til að stofna umrætt rannsóknarnet í tengslum við tveggja ára verkefnið „Kynjasjónarmið og loftslag á norðurslóðum“. Á meðan á verkefninu stóð voru skipulagðir fundir á vegum rannsóknarnetsins þar sem fræðimenn frá ýmsum háskólum komu saman. Rannsóknarhópurinn safnaði einnig efni fyrir stærra rannsóknarverkefni um öldrun á norðurslóðum. Shahnaj Begun, fræðimaður við Lapplandsháskóla (Lapplands universitet), vann doktorsverkefni um þetta rannsóknarverkefni en hún hefur verið hluti af rannsóknarnetinu frá upphafi. Hún segir norðurslóðir standa frammi fyrir miklum þjóðfélagslegum áskorunum sem stafa af því að margt ungt fólk, og sérstaklega margar ungar konur, flytja af svæðinu.
- Að ungt fólk flytji í burtu felur í sér að það skortir fólk sem getur sinnt því aldraða fólki sem situr eftir. Þetta er vandamál sem við þurfum að ræða og við ættum að geta unnið að sameiginlegum lausnum fyrir Norðurlönd, segir hún.

Lofslagsbreytingarnar séðar með kynjagleraugum

Shahnaj Begun talar um loftslagsbreytingar sem aðra stóra áskorun fyrir norðurslóðir og staðhæfir að loftslagsbreytingar og þjóðfélagslegar áskoranir tengist að hluta til.
- Loftslagsbreytingar gera tilveruna ótryggari og þær stuðla því miður að því að margt ungt fólk trúir ekki á framtíð hér, segir hún.
Hún telur mikilvægt að greina áhrif loftslagsbreytinga út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum.
- Vegna loftslagsbreytinga er til dæmis erfiðara fyrir Sama að stunda hreindýrabúskap vegna þess að  hreindýrin eiga erfiðara með að finna æti. Þetta bitnar fyrst og fremst á karlmönnum vegna þess að það er algengara að karlmenn sjái um hreindýrabúskapinn, en þetta bitnar líka á konum að því leiti að erfiðara verður að ná endum saman og hefðbundnari lifnaðarháttum er ógnað.

Rannsóknarnet sem stækkar

Shahnaj Begun segir að þetta kynjarannsóknarnet norðurslóða hafi opnað margar dyr undanfarin ár, sem bæði hafi leitt til nýs samstarfs en einnig nýrra rannsóknarverkefna.
Í upphafi samanstóð tengslanetið af vísindamönnum frá háskólanum í Lapplandi í Finnlandi, háskólanum í Umeå í Svíþjóð og háskólanum í Tromsö í Noregi. Undanfarin tíu ár hefur hópurinn stækkað og nú hafa til dæmis bæst við fræðimenn frá Háskóla Íslands og Manitoba háskólanum í Kanada.
- Rannsóknarnetið hefur auðveldað gert okkur kynjafræðingum sem stundum rannsóknir á eða um norðurslóðir auðveldara fyrir að þekkja til fræðimanna sem hægt skiptast á hugmyndum með eða eiga í samstarfi við og þetta er ákaflega dýrmætt.
Kynjasjónarmið og loftslag á Norðurslóðum
Úthlutunarár: 2013
Ämne: Jämställdhets- och välfärdspolitik
Styrkúthlutun: 150 000 DKK
Samstarfsaðilar:
  • Unit for Gender Studies, Lapplands universitet (SE)
  • Umeå universitet (SE)
  • Tromsö universitet (NO)
  • Northern (Arctic) Federal University NArFU (RU)
Go to content