Þegar Norræna ráðherranefndin stofnaði norræna jafnréttissjóðinn í júní árið 2013 var markmiðið að auka við norrænt samstarf í jafnréttismálum. Síðan þá hefur sjóðurinn styrkt sjálfboðasamtök, stofnanir, fræðimenn og samstarfsnet í 79 mismunandi verkefnum. Í þessari samantekt kynnum við reynslu okkar, innsýn og sjáanleg áhrif fyrstu 10 ára sjóðsins.
Að samstarfsverkefnunum starfa samtök frá að lágmarki þremur Norðurlöndum eða frá Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum, með það að markmiði að auka við jafnrétti á Norðurlöndum. Verkefnin geta einnig falið í sér samstarf við Eistland, Lettland og Litháen. Sjóðsverkefnin hafa meðal annars leitt til lagafrumvarpa, hagnýts fræðsluefnis, ráðstefna og stefnumótana.
Hér veitum við innsýn í tíu af þessum samstarfsverkefnum, eitt verkefni fyrir hvert ár í sögu sjóðsins, og sýnir þann árangur sem þau hafa skilað til jafnréttismála. Með stuttum fréttapistlum og viðtölum deila þátttakendurnir reynslu, lærdóm og innsýn sem þeirra jafnréttisverkefni hafa veitt. Þau velta fyrir sér ávinningi norræns samstarfs og hvernig við getum tekist á við þær áskoranir sem tilgreindar eru í norrænu samstarfsáætluninni um jafnrétti kynjanna. Þau segja einnig frá hvernig best sé að taka tillit til sjónarmiða barna og ungmenna í jafnréttisstarfi og leggja sitt af mörkum til að uppfylla heimsmarkmiðin um sjálfbærni.
Með samstarfsverkefnunum sem fjármögnuð hafa verið með jafnréttissjóðinum eykst þekkingin á þessu sviði og hún dreifist svo þvert á Norðurlöndin. Með því að segja frá verkefnunum geta þau gagnast fleirum og verið innblástur fyrir norræn samstarfsverkefni framtíðarinnar.
Norræna rannsóknarsetrið í kvenna- og kynjafræðum, sem notar skammstöfunina NIKK (s.Nordisk information för kunskap om kön), hefur umsjón með styrkauglýsingum, úthlutunum og eftirfylgni á verkefnum styrktum af jafnréttissjóðnum. NIKK er vistað hjá skrifstofu kynjarannsókna (s. Nationella sekretariat för genusforskning) sem heyrir undir Gautaborgarháskóla en stofnunin hefur frá árinu 2020 einnig haft umsjón með norræna LGBTI sjóðnum.