NORRÆNT-BALTNESKT LÖGREGLUSAMSTARF GEGN KYNBUNDNU OFBELDI

kort case 1.png
DANMÖRK, EISTLAND, FINNLAND, ÍSLAND, LETTLAND, NOREGUR
Meginmarkmið verkefnisins „Kynbundið ofbeldi á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum“ var að auka vitund fólks um ofbeldi karla. Verkefnið var fjármagnað af Norræna jafnréttissjóðnum og stóð yfir á árunum 2014-2015. Því var stýrt af Nordic-Baltic Network of Policewomen (NBNP), sem er samstarfsnet kvenna sem starfa hjá lögreglustofnunum á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum.
- Við vildum vekja athygli á þessum málum og auka við þekkingu innan lögreglunnar í viðkomandi löndum, sérstaklega þegar kemur að mansali, segir Inese Voloseviča.
Hún starfar sem lögreglustjóri í lettnesku lögreglunni og er stjórnarmaður í NBNP. Hún stýrði samstarfsnetinu árið 2015 þegar verkefninu um kynbundið ofbeldi var hrint í framkvæmd.
Innan ramma verkefnisins var haldin norræn-baltnesk ráðstefna í Ríga haustið 2015. Meðal þátttakenda voru lögreglumenn, ákvörðunarvaldhafar og fulltrúar frá ýmsum samtökum almennings.
- Þetta var mjög vel heppnað og við héldum margar góðar vinnustofur og fengum góða fyrirlesara. Forseti Lettlands, Vaira Vīķe-Freiberga, var meðal þátttakenda og hélt ræðu um mansal og jafnrétti kynjanna. Okkur fannst við hreyfa við fólki, segir Inese Voloseviča.

Mikill alþjóðlegur áhugi

Innan ramma verkefnisins skipulagði NBNP einnig tvo dagskrárliði á ársfundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW) árið 2015. Fundurinn fer fram í New York og þar koma saman þúsundir þátttakenda hvaðanæva að úr heiminum.
- 350 manns komu til hlusta á erindi um norræn-baltneska samstarfsnetið okkar. Okkur kom þessi mikla þátttaka og áhugi á starfsemi okkar á óvart, segir Inese Voloseviča.
Hún segi að mikill alþjóðlegur áhugi sé á því hvernig lögreglan á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum vinni gegn kynbundnu ofbeldi.
- Þetta er ekki bara vandamál hér, þetta er alþjóðlegt vandamál, segir hún.
Hún telur það mikilvægt að læra hvert af öðru á alþjóðlegum vettvangi í starfi gegn kynbundnu ofbeldi og hún sér sérstaklega sterk rök fyrir því að starfa saman innan Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Þetta á ekki síst við í starfi gegn mansali þar sem glæpirnir eiga sér oft stað þvert yfir landamæri.
- Verandi nágrannar er afar mikilvægt að við eigum gott samstarf í þessum málum og að við vinnum á sömu línu, segir hún.
Kynbundið ofbeldi á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum
Úthlutunarár: 2014
Efnisflokkur: Kynbundið ofbeldi
Styrkúthlutun: 300 000 DKK
Samstarfsaðilar:
  • Nordic-Baltic Network of Policewomen (NBNP) (IS)
  • Danish National Police (DK),
  • Police and Border Guard Estonia (EE)
  • Finnish National Police (FI)
  • State Police of Latvia (LV)
  • Ministry of Interior, Immunity (LV)
  • National Criminal Investigation Service NCIS (Kripos) (NO)
Go to content