Veturinn 2017 var haldin norræn MenEngage ráðstefna í fyrsta sinn. MenEngage er alþjóðleg hreyfing sem vill skora skaðleg karlmennskuviðmið á hólm og virkja karla í jafnréttisstarfi. Norræna ráðstefnan, sem hlaut styrk frá Norræna jafnréttissjóðnum, var haldin í Ósló undir slagorðinu „Making the Invisible Visible: Transforming Social Norms among Boys & Men for Gender Justice in Practice“.
Á ráðstefnunni var fjallað um norrænar aðstæður og áskoranir og þar komu saman samtök frá öllum Norðurlöndunum. Forgöngumaður ráðstefnunnar var Norwegian Reform. Formaður þeirra, Ole Bredesen Nordfjell, segir að eftir að hafa tekið þátt í nokkrum alþjóðlegum ráðstefnum um karla og jafnrétti kynjanna hafi hann séð þörf á að hittast og ræða þessi mál í norrænu samhengi. Hann telur að jafnréttissamtök á Norðurlöndum geti haft mikið gagn af slíku samstarfi.
- Auðvitað getum við lært mikið af samtökum frá öðrum löndum líka, í Evrópu og heiminum, en það er auðveldara að skiptast á reynslu og skapa sameiginlegar herferðir innan Norðurlanda vegna þess að samfélög okkar eru svipuð. Við erum til dæmis með svipað velferðarkerfi og skólakerfi. Við á Norðurlöndunum byrjuðum líka fyrr en margir aðrir að virkja karla í jafnréttisstarfi, til dæmis með því að taka upp fæðingarorlofsmánuði sem eru eyrnamerktir feðrum, segir hann.
Braut blað
Um 100 manns tóku þátt í ráðstefnunni sem fjallaði um sameiginlegar áskoranir og dæmi til að læra af. Samtök frá nokkrum mismunandi löndum, bæði norræn og annars staðar frá, kynntu starfsemi sína. Á málstofunum var fjallað um efni eins og ofbeldi karla, reynslu karla með innflytjendabakgrunn og fjarveru karla í umönnunarstörfum.
Ole Bredesen Nordfjell telur að ráðstefnan hafi brotið blað á nokkra vegu, til dæmis með vinnuaðferðinni sjálfri. Markmiðið var að skapa vettvang þar sem þátttakendur gætu lært hver af öðrum og fundið lausnir í sameiningu en þetta var það sem einkenndi allt fyrirkomulagið.
- Þátttakendurnir mættu ekki að dekkuðu borði heldur lögðu allir eitthvað efnislega af mörkum. Ég held að þetta hafi tekist vel, segir hann.
Hann bendir einnig á skurðpunkti ráðstefnunnar.
- Okkur fannst mikilvægt að skapa rými fyrir ólíka reynslu og sjónarhorn og ég held að þetta hafi tekist, segir hann.
Dýpra samstarf á Norðurlöndum
Ole Bredesen Nordfjell álítur að þökk sé hinum ólíku sjónarmiðum hafi ráðstefnan varpað ljósi á ný málefni og veitt norrænum jafnréttissamtökum sem leggja áherslu á karlmenn og karlmennsku nýjan drifkraft. Auk þess telur hann að ráðstefnuna hafa leitt til dýpri samvinnu stofnana í ólíkum löndum og telur að fyrirkomulagið hafi styrkt bæði samtök og einstaklinga.
- Jafnréttisstarf getur stundum verið einmanalegt og þá sérstaklega fyrir þau okkar sem vinnum gegn körlum í okkar femíniska starfi. Á ráðstefnunni kom í ljós að við erum mörg sem vinnum að sama markmiði, segir hann.