GENDERLAB, VINNUSTOFUAÐFERÐ Í BREYTINGAFERLI

kort case 1.png
DANMÖRK, FINNLAND, SVÍÞJÓÐ
Í jafnréttisstarfi eru ekki til neinar algildar lausnir sem virka í öllum aðstæðum. Því getur verið erfitt að ráðleggja um hvernig skuli áfram haldið í breytingaferli. Þetta er staðreynd sem leikarar frá Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð unnu með er þeir þróuðu GenderLAB vinnustofuaðferðina.
Aðferðin var þróuð á árunum 2018-2019 í verkefninu „Samfélagsskapað kynjajafnrétti, frá kennslustofu til stofnana: Nýsköpun í norrænni velferð“. Á meðan verkefninu stóð voru haldnar vinnustofur til reynslu í Kaupmannahöfn, Helsinki og Stokkhólmi.
Samkvæmt aðferðarinni eiga smiðjurnar að byggja á eigin reynslu þátttakenda og þeim staðbundnu áskorunum sem eru til staðar.
- Þátttakendum gefst færi á að greina vandamálin sjálfir og leggja til lausnir, segir Sara Louise Muhr, prófessor við Copenhagen Business School.
Hún útskýrir að GenderLAB aðferðin byggi á blöndu af normkrítík og „Design Thinking“.
Normkrítík snýst um að gera sýnileg og breyta ríkjandi viðmiðum og strúktúrum í samfélaginu. „Design Thinking“ er svo aðferð sem hönnuðir nota oft til að finna skapandi lausnir á flóknum vandamálum.
- Við sáum að þessar aðferðir virkuðu mjög vel saman, segir Sara Louise Muhr.

Finna lausnir í sameiningu

Í GenderLAB vinnustofu er markmiðið að þátttakendur öðlist þekkingu á jafnréttisáskorunum í sinni stofnun og að þeir öðlist áhuga á að standa að breytingum. Þátttakendurnir fá með sér samansafn lausna í smiðjunni sem þeir sjálfir tóku þátt í að smíða.
- Þetta ættu að vera áþreifanlegar tillögur sem þátttakendurnir geta tekið með sér heim og hrint í framkvæmd strax daginn eftir, segir Sara Louise Muhr.
Hún útskýrir að smiðjurnar séu byggðar upp með fjölbreytilegum atriðum og æfingum.
- Til að losna úr fjötrum vanans og ná að hugsa út fyrir rammann er til dæmis hægt að fara í frjálst hugarflug og upphugsa eins margar lausnir og þú getur á fjórum mínútum, segir hún.

Árangursríkt samstarf

GenderLAB aðferðin var þróuð af Copenhagen Business School og KVINFO (miðstöð Danmerkur fyrir kynja- og jafnréttismál) í samvinnu við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi og Rannsóknastofnunina GODESS við Hanken School of Economics í Helsinki. Sara Louise Muhr lýsir því svo að hið norrænu samstarf hafi verið árangursríkt.
- Við leggjum til mismunandi sjónarhorn og getum séð hluti hjá hvoru öðru sem við hefðum annars ekki tekið eftir. Á sama tíma erum við ekki heldur mjög ólík. Við getum lært hvert af öðru og deilum þeirri trú að mikilvægt sé að ögra viðmiðum og valdastrúktúr, segir hún.
GenderLAB aðferðin er meðal annars dreift í gegnum vefsíður KVINFO og Copenhagen Business School. Það útskýrir hvernig hægt er að innleiða GenderLAB.
- Þú velur sjálf hversu mikið efni vinnustofan á að fjalla um. Það er hægt að gera GenderLAB í litlum eða stórum stíl, með umræðustjórum sem sjá til þess að allt takist vel til, segir Sara Louise Muhr.
Hún segir að vinnustofuaferðin geti nýst vel til að vinna með fleira en kyn og kyngervi.
- Árið 2019 héldum við QueerLAB á Copenhagen Pride til dæmis.
Samfélagsskapað kynjajafnrétti, frá kennslustofu til stofnana: Nýsköpun í norrænni velferð
Úthlutunarár: 2018
Efnisflokkur: Jafnréttis- og velferðarstjórnmál
Styrkúthlutun: 310 000 DDK
Samstarfsaðilar: 
  • Copenhagen Business School, (DK)
  • Hanken School of Economics, (FI)
  • KTH Royal Institute of Technology (SE)
Go to content