Go to content

Samantekt á íslensku

Náttúrumiðaðar lausnir er alþjóðlega viðurkennd nálgun til að leysa stórar samfélagslegar áskoranir, til að mynda að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og byggja upp seiglu gegn áhrifum þeirra. Að auki draga þær úr hnignun umhverfisins og tapi á líffræðilegri fjölbreytni. Einnig er hægt að nýta náttúrumiðaðar lausnir til að takast á við aðrar samfélagslegar áskoranir, líkt og áhættu og viðbúnað vegna náttúruhamfara, stjórnun vatnamála, efnahagslega og félagslega þróun, fæðuöryggi, heilsu og velferð sem og félagslegt réttlæti. 
Náttúrumiðaðar lausnir eru enn vannýttar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að nýta þær í auknum mæli og sýna fram á jákvæð áhrif þeirra. Því er til mikils að vinna við að hvetja til og efla notkun þeirra.  Í A-DVICE verkefninu höfum við þróað handbók sem er aðgengileg á netinu með ráðleggingum til að styðja við samþættingu náttúrumiðaðra lausna í gegnum stefnumótun. Þetta er gert með því að skoða möguleg tækifæri og dæmi frá Norðurlöndunum (Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og sjálfstjórnarsvæðunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum). Verkefnið er hluti af áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um náttúrumiðaðar lausnir.
Handbókin og ráðleggingarnar byggja á niðurstöðum fyrri verkefna í áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um náttúrumiðaðar lausnir, auk annarra rannsókna og viðeigandi fordæma um stefnumótun á Norðurlöndunum. Einnig byggja þær á innsýn og reynslu samstarfsaðila verkefnisins.  Með viðtölum og vinnustofu með sérfræðingum, þar með töldum fagaðilum, rannsakendum, og fulltrúum félagasamtaka og stjórnsýslu, fékkst auk þess innsýn í hindranir og tækifæri við mótun stefnu fyrir náttúrumiðaðar lausnir 
Þetta samráð, ásamt innsýn úr fyrri verkefnum, sýna að algengustu hindranirnar fyrir samþættingu náttúrumiðaðra lausna eru fáir fjármögnunarvalkostir, ófullnægjandi samstarf þvert á atvinnugreinar, mismikil þekking á áhrifum náttúrumiðaðra lausna, skortur á stefnumarkandi framtíðarsýn og stjórnsýsluhættir sem falla illa að notkun náttúrumiðaðra lausna, svo dæmi séu tekin. Á hinn bóginn er töluverður uppgangur í nýtingu náttúrumiðaðra lausna og bjóða núverandi stefnur upp á mikil tækifæri. Í handbókinni eru tekin saman dæmi um þetta með það að markmiði að Norðurlöndin læri hvert af öðru.
Handbókin er fyrst og fremst ætluð aðilum sem koma að ákvarðanatöku í opinberri stjórnsýslu en einkageirinn, stofnanir og samtök sem vinna með náttúrumiðaðar lausnir geta einnig notið góðs af handbókinni. Ráðleggingarnar ná til margvíslegra stjórntækja, þar á meðal stjórnsýslunálgunar (líkt og lög og reglugerðir), markaðs- og efnahagslegra stjórntækja (svo sem fjármögnunaráætlanir) og stjórnsýsluhætti (eins og skipulagskerfi, stefnumótun og aðgerðaáætlanir). Einnig ná ráðleggingarnar til stjórntækja sem hvetja til sjálfsprottins samstarfs, þekkingarmiðlunar og vitundarvakningar á öllum stjórnsýslustigum.
Ráðleggingarnar eru flokkaðar eftir þeim samfélagsáskorunum sem þær geta stuðlað að lausnum á, gerð stjórntækja, auk þeirra stjórnsýslustiga sem þær eiga við. Þó ráðleggingarnar séu á almennum nótum og nái þvert yfir sviðið, þá eru í handbókinni sett fram sértæk dæmi um hvernig hægt er að aðlaga stefnur sem styðja við náttúrumiðaðar lausnir að staðbundnum aðstæðum og samfélagsáskorunum. Ráðleggingarnar í handbókinni fjalla um lykilþætti í mótun stefnu fyrir náttúrumiðaðar lausnir:
  • Menntun, uppbygging þekkingar og vitundarvakning. Meðal sérstakra ráðlegginga og dæma frá Norðurlöndum sem handbókin dregur fram eru þjálfunar- og vottunaráætlanir fyrir verktaka og stjórnendur véla, vettvangur með fræðsluefni sem aðgengilegur er á netinu og námskeið fyrir opinbera aðila til að auka þekkingu og færni. Einnig eru í handbókinni sérhæfðar leiðbeiningar fyrir innleiðingu náttúrumiðaðra lausna, sem og leiðir til að virkja ungt fólk til að sýna frumkvæði í náttúrumiðuðum lausnum.
  • Fjármögnun og efnahagslegir hvatar fyrir náttúrumiðaðar lausnir. Í handbókinni koma fram ráðleggingar og dæmi um hvernig má auðvelda einkafjármögnun, eyrnamerkja ríkisfé, nýta ESB-styrki og gjöld vegna ofanvatns til að styðja við innleiðingu og viðhald náttúrumiðaðra lausna.
  • Þátttaka hagaðila og samstarf fyrir náttúrumiðaðar lausnir. Í handbókinni eru dæmi um stefnur sem styðja við þátttöku hagaðila, áætlanir fyrir náttúrumiðaðar lausnir sem beinast að borgurum, þverfræðileg tengslanet og samstarf við einkaaðila þvert á atvinnugreinar.
  • Gagnreynd og aðlögunarhæf stjórnun. Meðal norrænna dæma í handbókinni eru matsrammar fyrir náttúrumiðaðar lausnir, kortlagning vistkerfa og landnýtingar, efling stuðningstækja fyrir ákvarðanatöku, kostnaðar- og ábatagreiningar og innleiðing arf- og staðbundinnar þekkingar.
  • Samþætting náttúrumiðaðra lausna í stefnumótun og þverfagleg nálgun. Sértækar ráðleggingar fjalla um hvernig samþætta má náttúrumiðaðar lausnir í deiliskipulagsgerð á báðum stjórnsýslustigum, samstarf sveitarfélaga, náttúrumiðaðar lausnir í innviðaverkefnum, sem og hvernig má nýta stjórntæki til að samþætta náttúrumiðaðar lausnir með stefnumótun.
Stefnur sem tengjast verndun, endurheimt og sjálfbærri nýtingu og stjórnun vistkerfa geta verið grunnur að samþættingu náttúrumiðaðra lausna á Norðurlöndum. Í þessari stefnuhandbók eru kynntar tillögur um hvernig má aðlaga núverandi stefnur og nýta nýjar nálganir til að styðja betur við náttúrumiðaðar lausnir. Til að tryggja samræmi og forðast misvísandi reglugerðir er gagnlegt að nota viðmið og staðla til að þróa og meta stefnur. Mikilvægt er að auka fjölbreytni í stjórntækjum til að hafa áhrif á ólíka hagaðila og samþætta náttúrumiðaðar lausnir á mismunandi sviðum. Norðurlöndin hafa skuldbundið sig til ýmissa alþjóðlegra samninga um loftslag og líffræðilega fjölbreytni. Stefnur sem styðja við notkun náttúrumiðaðra lausna heima fyrir geta einnig þjónað mikilvægum tilgangi við að uppfylla alþjóðleg markmið og skuldbindingar.