Áætlun þessi dregur fram áherslur formennskunnar og sameiginleg markmið fyrir árið 2026. Norrænt samstarf er okkur hjartansmál og við hlökkum til að veita því forystu á formennskuárinu.
Samstarfið í Norrænu ráðherranefndinni er Norðurlandaþjóðunum mikils virði. Svæðið er í sérflokki í alþjóðlegum samanburði. Ávinningur íbúanna felst meðal annars í einstaklega öruggum og sjálfbærum samfélögum, en það hefur ekki gerst á einni nóttu. Þetta er afrakstur sögulegrar þróunar sem spannar meira en hálfa öld. Norðurlönd hafa ekki staðið kyrr. Þau hafa alltaf þokast fram á við. Aðeins með því að vera í sífelldri framþróun getum við varðveitt kjarnann í norrænu samstarfi. Við verðum að halda áfram veginn og tryggja jafnt og þétt að samstarfið – bæði að formi og innihaldi – þjóni tilgangi sínum eins og best verður á kosið.
Eftir því sem veröldin veltist er mikilvægt að Norðurlönd séu ávallt fær um að finna í sameiningu nýjar og sjálfbærar lausnir á brýnum áskorunum og koma norrænum sjónarmiðum á framfæri á alþjóðlegum vettvangi. Norðurlönd – traust tengsl í hverfulum heimi.