Norðurlönd standa á tímamótum.
Með grimmilegu framferði Rússlands í Úkraínu er stríðið farið að nálgast okkar eigin bæjardyr. Falsfréttum er skipulega beint gegn lýðveldisskipan landa okkar og fjölþættar ógnir reyna á samtakamátt þjóðanna.
Á tímum svo mikillar óvissu liggur á að íbúar Norðurlanda standi saman. Lönd okkar eru sterk og hafa sameinast um einstaka samfélagsgerð sem einkennist meðal annars af miklu trausti, langri sameiginlegri sögu og djúprættu samstarfi. Eins og nú er komið er mikilvægt að geta reitt sig á samheldni landanna. Því er yfirskrift formennskunnar í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026: Norðurlönd – traust tengsl í hverfulum heimi.
Kyrrstaða er ekki í boði þegar umheimurinn er á fullri ferð. Norðurlönd þéttu raðirnar þegar Svíar og Finnar gengu í Atlantshafsbandalagið. Norrænu löndin átta verða öll sem eitt að standa vörð um gildi sín og velferðarsamfélög en það er ærinn starfi.
Samstarfið þarf því að verða enn nánara, til dæmis hvað varðar samfélags- og aðfangaöryggi, viðbúnað, glæpastarfsemi þvert á landamæri, aukna samkeppnishæfni Norðurlanda, græn umskipti og ekki síst vernd barna og ungmenna á stafrænum tímum. Við stefnum að því að fá Helsingforssamningnum, norrænu grundvallarlögunum, þannig breytt að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar geti orðið fullgildir aðilar að norrænu samstarfi.
Grænland er þátttakandi í tilteknum verkefnum á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar en ekki aðili að formennsku Danmerkur og Færeyja í ráðherranefndinni árið 2026. Grænland lætur þó ekki sitt eftir liggja við skipun nefndar sem ætlað er að endurnýja Helsingforssamninginn enda ræðst af starfi hennar hvort landið verði samþykkt sem samstarfsaðili sem stendur jafnfætis öðrum í norrænu samstarfi.
Norrænu löndin eiga að hafa náin tengsl við umheiminn. Við getum ekki reiknað með kyrrstöðu eins og aðstæður eru í heiminum. Þess vegna viljum við efla samstarfið við lönd annars staðar á jarðarkringlunni sem byggja á sömu gildum.
Norðurlönd eiga að verða samþættasta og sjálfbærasta svæði heims, þrátt fyrir að heimurinn sé á hverfanda hveli. Þannig stuðlum við að hagsæld fyrir lönd okkar og erum góð fyrirmynd fyrir önnur lönd veraldar.
Við hlökkum til að halda áfram að efla norrænt samstarf.