Fara í innihald

Markmið 5: Norðurlönd efld sem samþætt menntunar- og rannsóknasvæði

Markmið Norðurlanda er að verða samþættasta svæði heims fyrir árið 2030. Það á að vera auðvelt og eftirsóknarvert fyrir Norðurlandabúa að búa, stunda nám og starfa í öðru norrænu landi. Gagnkvæm viðurkenning á menntun og starfsréttindum er fremur almenn nú þegar og tugir þúsunda námsmanna og kennara taka þátt í skiptiáætlunum á ári hverju. Hvort tveggja stuðlar að samþættingu á Norðurlöndum. Eigi að síður þarf að vernda og styrkja ýmislegt til að Norðurlönd þyki eftirsóknar- og áhugaverð. Þarf að vera sjálfsagt að horfa til norræns samstarfs sem vettvangs fyrir pólitíska stefnumörkun landanna og mótun samnorrænna lausna og til Norðurlanda sem bandamanns í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi þar sem löndin geta talað einni röddu.
lieselotte_van_der_meijs-studying-8145.jpg

Undirmarkmið 5.1: Norðurlönd festi sig frekar í sessi sem mikilvægt og áhugavert svæði með því að miðla af reynslu sinni og meta norræn álitaefni með hliðsjón af evrópskri og alþjóðlegri stjórnmálaþróun.  

Undirmarkmið 5.2: Auðvelt sé og eftirsóknarvert fyrir Norðurlandabúa að stunda nám, rannsóknir og vinnu í öðru norrænu landi.

Undirmarkmið 5.3: Tryggja ber tíð náms- og starfsmannaskipti milli norrænu landanna og hreyfanleika almennt og sömuleiðis á milli Norðurlanda og Eystrasaltslanda á sviði menntunar og rannsókna.