Árið 2030 eiga, eins og áður, tækifæri fólks til að þróa færni sína alla ævi að liggja til grundvallar símenntun á Norðurlöndum, óháð þörfum þess og getu. Jafnframt þurfa löndin að þróa náms- og kennsluumhverfi sem er sveigjanlegt og aðlögunarhæft þar sem færni íbúanna er nýtt og þarfir vinnumarkaðarins og samfélagsins eru uppfylltar. Þetta nær einnig til starfsþróunar sem aftur krefst símenntunar kennara svo nýta megi nýjar aðferðir og styðja við starfstengt námi. Til að stuðla að umskiptum yfir í sjálfbærni og standa vörð um velferðarsamfélagið þurfa sem flestir að afla sér menntunar og taka þátt á vinnumarkaði með sérhæfingu í starfsgreinum sem samfélagið og atvinnulífið kalla eftir. Um leið verða Norðurlönd að vinna í sameiningu gegn félagslegri einangrun og jaðarsetningu til þess að umskiptin verði inngildandi og skilvirk.