Fara í innihald

Markmið 1: Öllum á Norðurlöndum standi til boða framúrskarandi menntun, frá unga aldri til æviloka, óháð bakgrunni

Norðurlönd skulu áfram vera öflugt menntunarsvæði í alþjóðlegum samanburði árið 2030, þar sem eru góð tækifæri til menntunar og allir búa yfir grunnfærni og stafrænni hæfni. Menntun á að veita öryggi frá unga aldri til fullorðinsára. Rannsóknir benda til að áhersla á gæðamenntun og snemmtækar aðgerðir, að viðbættum stuðningi þegar þörf er á, hafi í för með sér mannúðlegan og félagshagfræðilegan ávinning og dragi úr þörf á meiriháttar og kostnaðarsömum inngripum síðar á lífsleiðinni. Menntun á einnig að skapa færni og hvata til lýðræðis- og samfélagslegrar þátttöku auk þess að örva gagnrýna hugsun og gera fólki kleift að vinna gegn upplýsingaóreiðu og taka þátt í þjóðmálaumræðu og skoðanaskiptum sem byggjast á staðreyndum. Norðurlönd verða að vinna saman með skilvirkari hætti en áður að inngildingu í menntakerfinu og atvinnulífinu, meðal annars með því að tryggja heilbrigði og velferð fyrir alla, óháð menntunarstigi og tungumála- og menningarlegum bakgrunni, og tryggja forvarnarstarf og fræðslu frá unga aldri. 
ann-sofi_rosenkvist-primary_school_classroom-4846.jpg

Undirmarkmið 1.1: Fleiri öðlist almennilega grunnfærni.

Undirmarkmið 1.2: Menntun stuðli að aukinni lýðræðisfærni, gagnrýnni hugsun, stafrænni hæfni og getu íbúa til að fóta sig í nýjum miðla- og upplýsingaveruleika.

Undirmarkmið 1.3: Færri lendi utan við menntakerfið og vinnumarkaðinn, meðal annars vegna snemmtækra og fyrirbyggjandi aðgerða.

Undirmarkmið 1.4: Norðurlönd vinni að uppbyggilegum félagstengslum og bættri velferð og heilsu barna og námsmanna á öllum skólastigum.