Norðurlönd eiga að vera öflugt þekkingarsvæði og norrænar rannsóknir órjúfanlegur hluti af því að finna lausnir á stórum samfélagsáskorunum, þvert á fagsvið og samstarfseiningar. Rannsóknirnar skulu hafa norrænt notagildi, byggt á sameiginlegum gildum og viðmiðum, og tryggja að Norðurlandabúar búi yfir fullnægjandi þekkingu til að taka upplýstar ákvarðanir og bregðast skynsamlega við áskorunum. Norðurlönd eiga að vera eftirsóknarvert rannsóknasvæði með góð skilyrði til að vinna að rannsóknum, óháð kyni, aldri og atgervi. Þetta felur meðal annars í sér jafnt kynjahlutfall innan akademíunnar og fjölbreytta starfsmöguleika fyrir ungt rannsóknarfólk.