Tungumál eru hryggjarstykki samfélaganna okkar á Norðurlöndum og eiga þátt í að skapa samstöðu og traust og styrkja lýðræði og virkni íbúanna. Tungumálafjölbreytnin er mikil og þess vegna er mikilvægt að vernda og þróa öll tungumálin og tungumálasamfélögin, þar með talið tungu frumbyggja og minnihlutahópa. Norrænt málsamfélag er einstakt og styður ásamt öðru við samnorræna sjálfsmynd og ýtir undir að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Efla verður áhuga barna og ungmenna á að tjá sig á skandinavísku málunum því að þau eiga eftir að taka norrænt samstarf að sér innan tíðar og annast það. Börn, ungmenni og fullorðið fólk sem hefur annan menningar- og tungumálabakgrunn á að hafa tækifæri til að læra undirstöðutungumál þess norræna lands sem það kemur til. Efla ber norrænt tungumálasamstarf fram til ársins 2030 með langtímasamstarfi, góðri umgjörð fyrir tungumálin og pólitískri athygli, m.a. með því að fylgja eftir yfirlýsingunni um norræna tungumálastefnu og vinna markvisst að þróun stafrænna lausna og gervigreindar.