Samstarfsáætlunin gildir fyrir tímabilið 2025–2030 en er skipt niður í þriggja ára starfsáætlanir fyrir tímabilin 2025–2027 og 2028–2030.
Á miðju tímabili verður unnin úttekt og á grundvelli hennar getur ráðherranefndin ákveðið að gera breytingar á samstarfsáætluninni ásamt því að fá tillögur að því hvernig rétt sé að móta starfsáætlun seinna tímabilsins.
Auk þess verða gerðar milliúttektir eftir því sem framkvæmdastjóri og ráðherranefndin telja þörf á.