Fara í innihald

Markmið 4: Stuðla að góðu og öruggu vinnuumhverfi sem lagar sig að þeirri þróun og þeim kröfum sem eru á vinnumarkaði í dag

Heilbrigður vinnumarkaður

Öflugur vinnumarkaður krefst góðs vinnuumhverfis sem skiptir máli fyrir einstaklinginn en einnig löndin sjálf, því hann skapar skilyrði fyrir hagvöxt og fjármögnun velferðar­samfélaga Norðurlandanna. Hins vegar eru ýmsir þættir sem hafa áhrif á og breyta þeim vinnumarkaði sem við þekkjum.
Þetta varðar hvernig við innum störf okkar af hendi en einnig tilkomu nýrra tegunda starfa. Á sama tíma er lögð mikil áhersla á sálfélagslegar áskoranir. Launafólk og atvinnurekendur þurfa að aðlagast nýjum aðstæðum og kröfum. Til að það megi takast þurfa umskiptin að vera réttlát, skilvirk og inngildandi.
simon_paulin-creative_office_cooperation-5392.jpg
Til að ná því takmarki að stuðla að góðu og öruggu vinnuumhverfi í framtíðinni MR-A á næsta áætlunartímabili leggja sérstaka áherslu á að:  

Undirmarkmið 4.1

Stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi á tímum blandaðs vinnuumhverfis, vaxandi harkhagkerfis, sveigjanlegra ráðningarsamninga, nýrra ráðningarforma og lengri starfsævi.

Undirmarkmið 4.2

Auka þekkingu á orsökum, eðli og viðbrögðum við sálfélagslegum áskorunum sem breytt vinnuumhverfi getur haft.

Undirmarkmið 4.3

Efla þekkingu á tækifærum og áskorunum á norrænum vinnumarkaði í kjölfar aukinnar stafvæðingar, þar á meðal notkunar gervigreindar.

Undirmarkmið 4.4

Greiða fyrir árangursríkum áætlunum í vinnuvernd og eftirlitsaðferðum sem fyrirbyggja starfstengda sjúkdóma, slys, dauðsföll og óásættanlegar vinnuaðstæður.