Markmið 3: Styðja við heilbrigða samkeppni og aukinn hreyfanleika vinnuaflsins með skipulögðum vinnumarkaði og færri stjórnsýsluhindrunum á Norðurlöndum
Heilbrigð samkeppni
Mikilvægur þáttur í samkeppnisfærni og aðlögunarhæfni Norðurlanda er heilbrigð samkeppni. Hún krefst skipulags á vinnumarkaði og að vinnuafl geti ferðast frjálst. Það felur í sér að þörf er á öflugum samfelldum aðgerðum gegn stjórnsýsluhindrunum, brotastarfsemi á vinnumarkaði og félagslegum undirboðum. Þróun og beiting hins einstaka þríhliða vinnumarkaðslíkans á Norðurlöndum er mikilvæg í þessu starfi. Sama á við um náið samstarf um ESB-mál þegar um er að ræða málefni sem varða Norðurlöndin öll og þegar það þarf að skapa skilning og virðingu fyrir norræna vinnumarkaðslíkaninu svo og sjálfstæði og hlutverki aðila þess.
Til þess að ná markmiðinu um heilbrigða samkeppni og aukinn hreyfanleika vinnuaflsins mun MR-A á næsta áætlunartímabili leggja sérstaka áherslu á að:
Undirmarkmið 3.1
Efla aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði og félagslegum undirboðum yfir landamæri, meðal annars í gegnum norrænt-baltneskt samstarfsnet um brotastarfsemi á vinnumarkaði.
Undirmarkmið 3.2
Greiða fyrir frjálsri för starfsfólks milli Norðurlanda, meðal annars með afnámi stjórnsýsluhindrana.
Undirmarkmið 3.3
Tryggja jafnvægi milli verndar launafólks og sveigjanleika á vinnumarkaði, meðal annars með samstarfi um ESB-mál og við alþjóðlega aðila, með tilliti til þess sérstaka hlutverks sem aðilar vinnumarkaðarins gegna.