Markmið 2: Efla framboð á vinnuafli og stuðla að jöfnum tækifærum öllum til handa þannig að Norðurlönd geti brugðist betur við þörfum vinnumarkaðarins og nýtt færni alls vinnuaflsins
Öll hæfni skiptir máli
Íbúar Norðurlanda eru nokkuð vel menntaðir, búa við jafnrétti og starfa innan ramma norræna vinnumarkaðslíkansins. Líkanið tryggir öryggi, sveigjanleika og aðlögunarhæfni sem leiðir til hás atvinnustigs og framleiðni. Norðurlönd standa hins vegar frammi fyrir þeirri lýðfræðilegu þróun að fólki á vinnufærum aldri fækkar og eldri borgurum sem þarfnast umönnunar fjölgar. Þetta gerist samhliða því að alltof hátt hlutfall vinnufærra er hvorki í námi né vinnu. Á sama tíma eru enn skipulagshindranir víða á norrænum vinnumarkaði sem koma í veg fyrir að færni alls vinnuaflsins nýtist sem skyldi. Norðurlönd búa einnig við vaxandi alþjóðlega samkeppni þegar kemur að því að geta laðað til sín og haldið í hæft starfsfólk.
Til að ná markmiðinu um að efla framboð á vinnuafli og stuðla að jöfnum tækifærum öllum til handa vill MR-A á komandi áætlunartímabili leggja sérstaka áherslu á að:
Undirmarkmið 2.1
Efla þekkingu svo auka megi atvinnuþátttöku, með sérstaka áherslu á hópa sem eru á jaðri vinnumarkaðarins, þar á meðal aldraða, fólk með fötlun, konur af erlendum uppruna utan Evrópu og ungt fólk sem er hvorki í námi né vinnu.
Undirmarkmið 2.2
Stuðla að jafnri meðferð og jafnrétti á vinnumarkaði svo Norðurlönd geti nýtt hæfni alls starfsfólks án tillits til kyns, kynvitundar eða kyntjáningar, uppruna, trúarbragða eða annarra lífsskoðana, fötlunar, kynhneigðar eða aldurs.
Undirmarkmið 2.3
Afhjúpa hindranir og skilgreina mögulegar leiðir til að laða betur að og halda í hæft starfsfólk á Norðurlöndum þar sem skilyrði og skipulag á vinnumarkaði er gott.