Fara í innihald

Markmið 1: Tryggja tímanleg og réttlát umskipti fólks á vinnumarkaði til að allir séu með og hafi þá hæfni sem þarf til að taka þátt í hinum grænu og stafrænu umskiptum

Öll með

Líklegt þykir að græn og stafræn umskipti muni leiða til fækkunar starfa í sumum greinum en skapa um leið ný störf annars staðar. Mikilvægt er að beina þeim sem eiga á hættu að missa vinnuna yfir í aðrar greinar sem eru í vexti. Virk vinnumarkaðsstefna og fjár­festingar í færniþróun, starfsendurhæfingu og sí- og endur­menntun gegna mikilvægu hlutverki í þessum umskiptum. Vinnan að þessu markmiði skiptir ekki eingöngu sköpum um hvort græn og stafræn umskipti takist heldur gegnir hún einnig lykilhlutverki varðandi það að ójöfnuður aukist ekki.
sofia_sabel-bioink-7548.jpg
Til að ná markmiðinu um að tryggja tímanleg og réttlát umskipti fólks á vinnumarkaði vill MR-A á næsta áætlunartímabili einkum leggja áherslu á að:

Undirmarkmið 1.1

Efla þekkingu á því hvernig græn og stafræn umskipti hafa áhrif á norræna vinnumarkaði og færniþörf.

Undirmarkmið 1.2

Flýta fyrir grænum og stafrænum umskiptum á vinnumarkaði, ekki síst utan stærri borga á Norðurlöndum.

Undirmarkmið 1.3

Stuðla að símenntun og tækifærum til þróunar, meðal annars með því skapa betri tækifæri og hvata til að sækja sér starfsmenntun, í nánu samstarfi við viðkomandi málefnasvið.