Hvað er Info Norden?
Info Norden er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið með þjónustunni er að auðvelda frjálsa för á Norðurlöndum. Á Info Norden er að finna yfirlit og flýtileiðir fyrir fólk sem vill flytja, vinna, stunda nám og stofna eða reka fyrirtæki á Norðurlöndum.
Info Norden þróar og heldur úti vefsvæði í samstarfi við stjórnvöld í norrænu löndunum, svarar erindum frá notendum, tilkynnir hugsanlegar stjórnsýsluhindranir til Stjórnsýsluhindranaráðsins og sinnir upplýsingastarfsemi sem beinist að yfirvöldum, starfsfólki opinberra stofnanna og öðrum hagsmunaaðilum.
Info Norden er með skrifstofur í höfuðborgunum átta og svarar fyrirspurnum á dönsku, finnsku, færeysku, grænlensku, íslensku, norsku, sænsku og ensku.
Frá 2025 er Info Norden hluti af áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um frjálsa för á Norðurlöndum.