Fara í innihald

Fylgiskjal: Drög að forsætis­nefndar­tillögu

Forsætisnefndartillaga um uppfærslu Helsingfors­samningsins

Tillaga

Forsætisnefnd Norðurlandaráðs leggur til
Norðurlandaráð beini þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna
skipa norræna nefnd sem vinni tillögur að breytingum að uppfærðri útgáfu af Helsingforssamningnum,
tillögur nefndarinnar innihaldi m.a.:

Nýjar greinar um norrænt samstarf um:

  • Varnar- og öryggismál
  • Almannaöryggi, viðbúnað og samfélagsöryggi;
  • Loftslagsmál
  • Réttindi barna og ungs fólks og inngilding þeirra í norrænt samstarf almennt, þar á meðal hlutverk Norðurlandaráðs æskunnar;
  • Stjórnsýsluhindranir – afnám og fyrirhyggju;

Uppfærðar greinar um norrænt samstarf svo þær eigi betur við samstarf og metnað sem felst í norrænu samstarfi í dag um:

  • Félagsmál, þar á meðal nefna norræna velferðarlíkanið og leggja áherslu á inngildingu barna og ungs fólks sem sjálfstæðan málaflokk;
  • Menntun, rannsóknir, menning og tungumál;
  • Umhverfismál, þar á meðal líffræðilega fjölbreytni og náttúru;
  • Samgöngumál, þar á meðal stafræna innviði;
  • Aðila að Helsingforssamningnum, þar á meðal að þátttaka í norrænu samstarfi byggist á jafnræði milli landanna og að þátttaka Álandseyja, Færeyja og Grænlands í norrænu samstarfi endurspegli þróunina í sjálfstjórnarlöndunum og veiti sveigjanleika fyrir það sem ólíkt er og þróun til framtíðar,
    eða
    að ríkisstjórnir norrænu landanna kanni hvernig breyta megi Helsingforssamningnum þannig að hægt verði að auka aðkomu Álandseyja, Færeyja og Grænlands að norræna samstarfinu með hliðsjón af þeim lagarömmum sem stjórna sambandi Danmerkur, Færeyja og Grænlands annars vegar og Finnlands og Álandseyja hins vegar.
  • Að norræna samstarfið í ESB og EES fái meira áberandi hlutverk í Helsingforssamningnum með fastara orðalagi um norræna samvinnu um mótun og innleiðingu nýs regluverks.

Almenna uppfærslu orðalags í samningnum og að tekin verði með norræn grundvallargildi eins og lýðræði, mannréttindi og jafnrétti;

stefnt sé að því að tillaga nefndarinnar að uppfærðum Helsingforssamningi liggi fyrir 2025 og geti tekið gildi 2026 (30 árum eftir að síðasta uppfærsla tók gildi);
Norðurlandaráð eigi fulltrúa í nefndinni og að nefndin starfi í samráði við Norðurlandaráð.

Bakgrunnur

(Bætt við hluta af umfjöllun skýrslunnar á aðdragandanum og vísað í skýrsluna)

Sjónarmið forsætisnefndar

(Bætt við eftir að forsætisnefnd hefur afgreitt drög að forsætisnefndartillögu)
Staður, dagsetning 2024
(Þingmenn í forsætisnefnd)