Fara í innihald

5. Aðrir málaflokkar

Eins og fram kemur í kafla 1.0 ákvað vinnuhópurinn að benda á nokkra málaflokka í 4. kafla sem vinnuhópurinn telur að sýni á ýmsan hátt að þörf sé á endurskoðun Helsingforssamningsins.
Vinnuhópurinn hefur einnig metið hvað beri að taka með í almenna grein eða inngangsorð sem tengist mikilvægum norrænum gildum eins og lýðræði, mannréttindum og jafnrétti sem norrænt samstarf byggist á. Þetta er mikilvægur grundvöllur fyrir norrænu löndin og verður ríkisstjórnunum falið að meta hvernig þau gildi verði felld með viðeigandi hætti inn í uppfærðan Helsingforssamning.
Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð hafa unnið ötullega að því að þróa inngildandi samfélag Norðurlanda fyrir alla íbúa. Það getur verið aðlögun innflytjenda, inngilding fólks með geðræna eða líkamlega fötlun og viðurkenning ýmissa minnihlutahópa. Viðurkenning þess að Norðurlöndin búi yfir miklum fjölbreytileika og gildi þessa má gjarnan endurspeglast í endurskoðuðum Helsingforssamningi.
Réttindi frumbyggja á Norðurlöndum hafa einnig verið rædd, einkum staða Sama sem búa í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi. Norðurlandaráð hefur aukið samstarf sitt við Þingmannaráð Sama á undanförnum árum með þátttöku á þingum og nefndarfundum. Ríkisstjórnunum verður falið að meta stöðu norrænna frumbyggja í norrænu samstarfi.
Réttarsamstarfs og samstarfs í orkumálum er ekki getið í skýrslunni með tilliti til lengdar skýrslunnar. Að því leyti sem norrænu ríkisstjórnirnar vilja styrkja orðalagið í Helsingforssamningnum um norrænt alþjóðasamstarf mætti bæta því við í framhaldi vinnunnar. Þeir málaflokkar sem nefndir eru í skýrslunni er ekki tæmandi listi.
Málaflokkur sem fjallað er um víða í skýrslunni er þörfin á að uppfæra orðalag Helsingforssamningsins. Tungumálið og dæmin sem nefnd eru í samningnum er úrelt. Það á meðal annars við um 13. grein sem vísar á möguleika „útvarps og sjónvarps“ fyrir menningarsamstarf og 14. grein sem nefnir „frjáls skipti á nemum í verknámi“. Uppfært orðalag nær einnig til þess sem ekki stendur í samningnum en eðlilegt væri að taka með væri samningurinn skrifaður í dag. Það gæti verið umfjöllun um fjölmiðlaþróun í kaflanum um menningarsamstarf, eða að ekki er minnst á loftslagsmál og líffræðilega fjölbreytni í kaflanum um samstarf í umhverfismálum.
Þá vill vinnuhópurinn benda á að samband Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar er mikilvægt málefni í Helsingforssamningnum en vinnuhópurinn kýs að fara ekki nánar út í þá sálma að sinni. Verði rætt um skipulag og samstarfshætti Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar í sambandi við endurskoðun Helsingforssamningsins, verður sú endurskoðun að fara fram þegar lagt hefur verið mat á núverandi skipulag og í samstarfi við framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs og framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.