Fara í innihald

2. Samantekt og tillögur

Skýrslan skiptist í þrjá inngangskafla þar sem settur er rammi fyrir skýrsluna. Í fjórða kafla koma fram mismunandi málaflokkar sem vinnuhópurinn vill að komi fram í uppfærðum Helsingforssamningi. Eitthvað af málaflokkunum koma þegar fram í núverandi samningi og í þeim tilfellum telur vinnuhópurinn að þörf sé á efnislegum eða málfarslegum breytingum. Þetta á við um umhverfismál, samgöngumál, velferðarmál, menningarmál og evrópskt samstarf.
Vinnuhópurinn fjallar einnig um málaflokka sem ekki koma fram í núverandi samningi en eru mál sem skipta máli í norrænu samstarfi dagsins í dag. Þetta á við um öryggis- og varnarmál, viðbúnað og samfélagsöryggi. Ásamt vinnunni við að fyrirbyggja og ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum eru eftirfarandi málefni sem vinnuhópurinn leggur til að tekin verði upp í Helsingforssamningnum. Vinnuhópurinn leggur til tvo möguleika í sambandi við kafla 4.9 „Aðilar að Helsingforssamningsins“.
Í 5. kafla er meðal annars bent á að skýrslan sé ekki tæmandi hvað varðar málaflokka sem taka ætti með í uppfærðum Helsingforssamningi. Vinnuhópurinn hefur valið málaflokka sem varpa skýru ljósi á hvað hafa þarf í huga þegar Helsingforssamningurinn er uppfærður.
Í viðauka skýrslunnar er að finna drög að forsætisnefndartillögu fyrir forsætisnefnd Norðurlandaráðs.