Fara í innihald

6. Lokaorð

Vinnuhópurinn vil þakka öllum þeim sem tekið hafa þátt í fundunum. Sérþekking þeirra og skilningur hefur skipt sköpum fyrir matið í skýrslunni.
Það sem helst hefur vakið athygli vinnuhópsins við gerð skýrslunnar og tillagnanna er að miklar breytingar eiga sér stað í norrænu samstarfi sem í senn opnar upp og kallar á aukið samstarf á Norðurlöndum. Uppfærsla Helsingforssamningsins mun efla Norðurlönd og verða grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarf landanna.
Ríkar ástæður eru fyrir því að ekki hafa verið gerðar miklar breytingar á Helsingforssamningnum á þeim árum sem liðið hafa. Heildarsamningar um samstarf milli landa liggja yfirleitt fast. Þær miklu breytingar sem orðið hafa í norrænu en einnig öðru alþjóðasamstarfi á síðari árum hefur hleypt krafti í norrænt samstarf og veitt því aukið vægi. Sérstaklega mikilvægt er breytt ástand í öryggismálum sem skapar alveg ný skilyrði fyrir samstarfi á Norðurlöndum.
Þingmenn í vinnuhópnum eru sannfærðir um að endurskoðaður Helsingforssamningur muni styrkja norrænt samstarf til framtíðar og leggja til við forsætisnefnd Norðurlandaráðs að hún beini þeim tilmælum til norrænu ríkisstjórnanna að þær uppfæri Helsingforssamninginn.