Fara í innihald

Inngangsorð framkvæmda­stjóra

Vinnan að því að uppfylla Framtíðarsýn okkar 2030 og markmiðin á áherslusviðunum þremur, þ.e. grænum, samkeppnishæfum og félagslega sjálfbærum Norðurlöndum, heldur áfram í fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2024.
Fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2024 er sú síðasta á fjögurra ára framkvæmdaáætluninni sem gildir frá 2021–2024. Í því skyni að styðja við vinnuna við að uppfylla framtíðarsýnina hafa undanfarin þrjú ár verið gerðar miklar breytingar á fjárveitingum í fjárhagsáætluninni þar sem áherslan hefur verið á að efla vinnuna á grænum sviðum. Á þessu tímabili hafa framtíðarsýnin og framkvæmdaáætlunin stuðlað að því að tryggja að Norræna ráðherranefndin standi nú og hér eftir undir þeim væntingum sem almenningur, fyrirtæki og aðrir aðilar á Norðurlöndum hafa til samstarfsins.
Sá árangur sem náðst hefur með vinnunni við framkvæmdaáætlunina og lesa má um í áfangaskýrslu um Framtíðarsýn okkar 2030 bendir til þess að við séum að mörgu leyti nær því að ná settum markmiðum. Áfangaskýrslan sýnir þó jafnframt að norræn samfélög standa enn frammi fyrir mörgum áskorunum. Það á einkum við þegar kemur að umskiptum í átt til sjálfbærari samfélaga, en þau ganga of hægt fyrir sig, samþættingu á milli norrænu landanna, m.a. á sviði stafvæðingar, og bættum skilyrðum fyrir atvinnulífið á Norðurlöndum í heild sinni.
Norræna ráðherranefndin leggur sitt af mörkum til vinnunnar með því að stuðla að lausnum á þessum og öðrum áskorunum með hugmyndavinnu og stefnumótun, fundum með viðeigandi aðilum og stuðningi við áætlanir og verkefni sem skila sér í mikilvægri þekkingu og gögnum sem pólitísk umræða í norrænu löndunum getur byggst á. Í þeirri vinnu gegnir fjárhagsáætlunin mikilvægu hlutverki varðandi pólitíska forgangsröðum og áherslur á aðgerðir á þeim sviðum þar sem þær skila mestum árangri.
Undanfarin ár hefur sérstaklega verið lögð mikil áhersla á að tryggja góða umsýslu fjármuna. Svo verður áfram á árinu 2024 og eftirleiðis. Meðal annars hefur verið sett af stað vinna til þess að tryggja umsjón með markmiða- og árangursstjórnun sem gagnast bæði valdhöfum og þeim sem taka við fjárveitingum og verður innleidd á næstunni.
Norrænu samstarfsráðherrarnir hafa ákveðið að framtíðarsýnin og áherslusviðin þrjú gildi áfram til ársins 2030. Með því er þó ekki sagt að við munum gera allt með sama hætti og áður. Á árinu 2024 mun vinnan við að þróa og samþykkja nýjar samstarfsáætlanir og markmið fyrir allar fagráðherranefndirnar frá 2025 vera fyrirferðarmikil í daglegu starfi fagsviðanna. Heimsmyndin breytist stöðugt og þótt hin almenna stefna sé óbreytt er alltaf þörf á smávægilegum breytingum hér og þar til þess að tryggja að við stefnum að sameiginlegu markmiði okkar um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.
Karen Ellemann
framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar