Fara í innihald

Fjárhagsrammi Norrænu ráðherra­nefndarinnar 2024

Fjárhagsrammi Norrænu ráðherranefndarinnar á árinu 2024 nemur samtals 1.055.400 þús.DKK og er hann óbreyttur að raungildi miðað við fjárhagsáætlun ársins 2023.
Rammann er hægt að sundurliða á eftirfarandi hátt:
Heildarramminn
ÞÚS.DKK
Samþykkt fjárhagsáætlun 2024 á verðlagi ársins 2023
1.037.564
Áhrif verðbólgu milli ára á verðlagi ársins 2024
39.608
Áhrif gengisbreytinga milli ára
-21.772
Samtals á verðlagi ársins 2024
1.055.400
Vegna framreiknings í fjárhagsáætlun ársins 2024 koma til verðbætur að upphæð 39.608 þús.DKK, sem samsvara um 3,8% hækkun fjárhagsáætlunar. Umreikningur fjárveitinga til stofnana úr gjaldmiðli landsins í danskar krónur felur í sér hækkun á fjárhagsáætlun að upphæð -21.772 þús.DKK. Þó ber að undirstrika að þetta hefur engin raunveruleg áhrif á stærð fjárhagsáætlunarinnar (og framlög landanna) eða upphæð fjárveitinga til stofnana. Gengi gjaldmiðla er eingöngu notað til að umreikna fjárveitingar til stofnana, sem greiddar eru út í gjaldmiðli búsetulandsins, yfir í danskar krónur.
Norræna ráðherranefndin er formlegur samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Starfsemi Norðurlandaráðs byggist á Helsingforssamningnum frá 1971. Formennska í ráðherranefndinni færist árlega milli landanna. Svíþjóð tekur við formennsku af Íslandi 2024. Norrænu samstarfsráðherrarnir (MR-SAM) bera meginábyrgð á því að samræma samstarfið. Auk þess fer samstarfið fram í ellefu fagráðherranefndum. Skiptingu fjárveitinga milli ráðherranefndanna má sjá á töflunni á næstu blaðsíðu.
Í framhaldi af nútímavæðingarferlinu Ný Norðurlönd 1.0 var almennu ákvæði bætt inn í fjárhagsáætlunina 2017 sem gefur kost á pólitískum tilfærslum á fé við sérstakar aðstæður. Hugsunin að baki ákvæðinu er sú að ef sérstakar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar á fjárhagsáætlun eigi að vera pólitískt hægt að bregðast við breyttum þörfum. Ákvæðið veitir samstarfsráðherrunum umboð í sérstökum tilvikum og innan þeirra eigin ramma til að færa til fé milli fjárhagsliða. Ákvæðið gerir einnig samstarfsráðherrunum kleift í sérstökum tilvikum og að fenginni tillögu frá viðkomandi ráðherranefnd til að samþykkja tilfærslu á fé innan fjárhagsramma annarra fagsviða. Ákvæðinu skal beitt í samráði við Norðurlandaráð. Sjá fylgiskjal um ráðstöfunarreglur Norrænu ráðherranefndarinnar.
Fjárhags­áætlun
Fjárhags­áætlun
Mismunur
2024
2023
Nafnv.
Leiðr.
1.
MR-SAM, samstarfsráðherrarnir
285.852
288.479
-3.306
-12.125
a.
Stuðla að grænum, samkeppnishæfum og félagslega sjálfbærum Norðurlöndum
122.423
135.680
-13.936
-17.625
b.
Alþjóðasamstarf
62.553
55.429
7.124
5.000
i. Þar af skrifstofurnar*
16.458
14.979
1.479
1.000
c.
Skrifstofuhald
100.876
97.370
3.506
500
i. Þar af skrifstofan (NMRS)
90.563
87.925
2.638
0
2.
MR-U, menntamál og rannsóknir
200.388
208.132
-7.744
-7.250
a.
Almenn framlög til menntamála og rannsókna
207
205
2
-5
b.
Stefnumörkun o.fl.
12.341
13.351
-1.010
-1.451
c.
Ferðastyrkja- og samstarfsnetaáætlanir
84.866
80.164
4.702
1.674
d.
Norræna rannsóknaráðið, NordForsk (stofnun)
101.477
112.732
-11.255
-7.232
e.
Annað rannsóknasamstarf
1.497
1.680
-183
-236
3.
MR-S, félags- og heilbrigðismál
42.157
42.984
-827
-500
i. Þar af Norræna velferðarmiðstöðin (stofnun)
18.540
19.941
-1.401
-231
4.
MR-K, menningarmál 
155.590
157.856
-2.266
-7.250
a.
Almenn framlög til menningarmála 
44.850
45.428
-578
-2.178
b.
Kvikmyndir og fjölmiðlar
33.087
32.558
529
-651
c.
Styrkjaáætlanir
31.509
31.922
-413
-1.538
d.
Menningarstofnanir
42.449
43.233
-784
-1.731
e.
Önnur framlög til menningarmála
3.695
4.715
-1.020
-1.152
5.
MR-FJLS, fiskveiðar og fiskeldi, landbúnaður, matvæli og skógrækt
52.120
50.863
1.257
1.750
a.
Fiskveiðar
6.906
6.660
246
0
b.
Landbúnaður
25.813
27.244
-1.431
0
i. Þar af Norræna erfðaauðlindastofnunin, NordGen (stofnun)
23.810
25.313
-1.503
0
c.
Skógrækt
7.057
6.805
252
0
d.
Matvæli
6.502
6.270
232
0
6.
MR-JÄM, jafnréttismál og LGBTI
12.017
11.589
428
0
7.
MR-VÆKST, sjálfbær hagvöxtur
164.134
156.456
7.678
8.500
a.
Atvinnulíf
100.768
97.954
2.814
4.000
i. Þar af Norræna nýsköpunarmiðstöðin (stofnun)
63.483
78.404
-14.921
-12.404
b.
Orkumál
26.542
22.407
4.135
4.000
i. Þar af Norrænar orkurannsóknir (stofnun)
10.780
10.407
373
800
c.
Byggðamál
36.824
36.095
729
500
i. Þar af Nordregio, rannsóknarstofnun á sviði byggða- og skipulagsmála (stofnun)
10.994
11.687
-693
0
8.
MR-MK, umhverfis- og loftslagsmál
106.506
86.456
20.050
16.250
9.
MR-A, vinnumál
13.733
13.788
-55
-500
 
i. Þar af Norræna stofnunin um framhaldsmenntun í vinnuvernd, NIVA (stofnun)
3.438
3.810
-372
-450
10.
MR-FINANS, efnahags- og fjármál
1.651
1.592
59
0
11.
MR-JUST, dómsmál
1.237
1.193
44
0
12.
MR-Digital, stafvæðing
20.015
18.176
1.839
1.125
Norræn heildarfjárhagsáætlun
1.055.400
1.037.564
17.157
0
*Skrifstofur ráðherranefndarinnar í Eistlandi, Lettlandi, Litáen og Norðvestur-Rússlandi.