Fara í innihald

Tekjuliðir fjárhags­áætlunar og framlög landanna

Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar er aðallega fjármögnuð með beinum framlögum landanna. Grundvallarreglan er sú að framlög landanna samsvari heildarfjárhagsramma að frádregnum launatengdum gjöldum, nettóvaxtatekjum og öðrum tekjum, sbr. töflu hér að neðan. Framlög landanna eru ákveðin samkvæmt skiptireglu sem ræðst af hlutdeild landanna í samanlögðum vergum þjóðartekjum miðað við kostnaðarverð síðustu tveggja ára sem tölur liggja fyrir um á Norðurlöndum (í fjárhagsáætlun ársins 2024 eru það 2020 og 2021).
TEKJUR
Þús. DKK (á verðlagi ársins*)
2021
2022
2023
2024
Fjárhags­áætlun
Skipti­regla  
Fjárhags­áætlun
Skipti­regla
Fjárhags­áætlun
Skipti­regla
Fjárhags­áætlun
Skipti­regla
Launatengd gjöld
13.500
 
13.500
 
14.000
 
14.000
 
Aðrar tekjur (t.d. vextir)
0
 
0
 
0
 
0
 
Framlög landanna
955.523
 
973.988
 
1.023.564
 
1.041.406
 
– Danmörk
208.304
21,8%
216.540
22,2%
233.373
22,8%
234.183
22,5%
– Finnland
159.572
16,7%
164.431
16,9%
177.077
17,3%
175.002
16,8%
– Ísland
15.288
1,6%
15.704
1,6%
15.353
1,5%
14.627
1,4%
– Noregur
265.635
27,8%
270.096
27,7%
265.103
25,9%
272.196
26,1%
– Svíþjóð
306.723
32,1%
307.217
31,5%
332.658
32,5%
345.399
33,2%
Samtals:
969.023
100%
987.488
100%
1.037.564
100%
1.055.406
100%

Greiðslufyrirkomulag vegna æðri menntunar

Samningurinn um aðgang að æðri menntun kveður á um að greiðslur milli landa skuli gerðar upp í framlögum þeirra til árlegrar fjárhagsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar. Ákvæðið hefur þannig áhrif á framlög landanna í hinn samnorræna sjóð. Greiðslufyrirkomulagið gildir um Danmörku, Finnland, Noreg og Svíþjóð. Greiðslufyrirkomulagið gildir ekki um Ísland, Álandseyjar, Færeyjar og Grænland. Er því tekið tillit til innbyrðis skiptingar greiðslna milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar samkvæmt greiðslufyrirkomulaginu í framlögum landanna til fjárhagsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar.  Árið 2018 var ákveðið að framlengja samninginn enn um sinn. 
Í samningnum er kveðið á um að greiða skuli fyrir 75% þess fjölda námsfólks sem hlýtur námsstyrk í búsetulandinu samkvæmt reglum sem þar gilda, og er skráð í nám hjá æðri menntastofnun í öðru norrænu landi, sem fellur undir 1. gr. samningsins. Nemar í rannsóknanámi og ósérgreindu háskólanámi eru ekki taldir með í útreikningunum.
Árleg greiðsla fyrir hvern námsmann er 36.112 DKK árið 2024.
Ráðherranefndinni berast tölfræðilegar upplýsingar frá menntasjóðum landanna sem liggja til grundvallar þegar reiknaður er út sá fjöldi námsfólks sem ætlað er að fari á milli landa og falla undir greiðslufyrirkomulagið.
Greiðslufyrirkomulag, æðri menntun (þús.DKK)
 
Fjárhags­áætlun
Fjárhags­áætlun
Fjárhags­áætlun
Fjárhags­áætlun
 
2021
2022
2023
2024
Danmörk
-59.627
-58.429
-54.355
-53.924
Finnland
51.119
44.073
41.197
36.699
Ísland
0
0
0
0
Noregur
43.594
43.019
37.555
36.048
Svíþjóð
-35.086
-28.663
-24.397
-18.823
Samtals:
0
0
0
0
Á eftirfarandi yfirliti má sjá framlag frá löndunum til Norrænu ráðherranefndarinnar í þúsundum eininga gjaldmiðils hver lands. Framlögin eru með tilliti til greiðsluákvæða.
Fjárhagsáætlun 2024 – Áætluð framlög landanna í eigin gjaldmiðli
Danmörk
180.259
þús.DKK
Finnland
28.416
þús.EUR
Ísland
291.534
þús.ISK
Noregur
460.066
þús.NOK
Svíþjóð
494.811
þús.SEK