Fara í innihald

Samningur Norrænu ráðherra­nefndarinnar og Norðurlandaráðs um pólitísk forgangsmál og ráðstöfun fjármuna Norrænu ráðherra­nefndarinnar 2025

Í ágúst 2024 fóru fram viðræður við Norðurlandaráð um pólitísk forgangsmál og ráðstöfun fjármuna Norrænu ráðherranefndarinnar 2025. Samkomulag er um eftirfandi samningstexta:
Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð standa saman að framtíðarsýninni um að Norðurlönd skuli vera sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030 og að stefnumótandi áherslusviðunum þremur: grænum, samkeppnishæfum og félagslega sjálfbærum Norðurlöndum.
Á vordögum 2023 fóru af stað viðræður á milli Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs um forgangsmál í nýjum samstarfsáætlunum Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árin 2025–2030. Þar hefur náðst sátt um markmið og undirmarkmið fyrir umrætt tímabil.
Fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2025 og bráðabirgðarammar fyrir árin 2026–2027 eru unnir með hliðsjón af samstarfsáætlunum. Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð eru sammála um meginþætti fjárhagsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir 2025 og bráðabirgðaramma fyrir 2026–2027.
Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð eru þar að auki sammála um að í frekari umræðum um starfsáætlanirnar skuli lögð sérstök áhersla á eftirfarandi aðgerðarsvið á tímabilinu 2025–2027:
  1. Aðlögunarmál og frjáls för: Vinna að aðlögunarmálum og frjálsri för á milli landanna er efld með auknum tilföngum til vinnunnar gegn stjórnsýsluhindrunum og með upplýsingamiðlun og fjölda verkefna sem auðvelda frjálsa för.
  1. Stuðningur við stofnanir borgarasamfélagsins: Frá árinu 2025 eykst fjármagnsstuðningur enn með nýjum fjárhagsliðum sem stofnanir, sem hafa það að höfuðstarfi að sinna norrænni samvinnu, geta sótt um fjármagn fyrir þrjú ár í senn. Einnig verður möguleiki á hverju ári að sækja um fjármagn til verkefna tengd norrænum málefnum.
  1. Börn og ungmenni: Frá árinu 2025 munu aðgerðir einkum snúa að lýðræðisþátttöku ungmenna og vinnunni gegn vanlíðan og geðsjúkómum.
  1. Samstarfið í mennta- og menningarmálum: Norrænt mennta- og menningarsamstarf er eflt með áherslu á þróun lýðræðislegs norræns samstarfs.
  1. Aukinn viðnámsþróttur í norrænu löndunum: Aukið þverfaglegt samstarf um samfélagsöryggi, þ.m.t. almannavarnir og viðnámsþrótt.
Norræna ráðherranefndin skuldbindur sig til að fylgja vinnunni eftir og gefa Norðurlandaráði reglulegar skýrslur um þróun átaksverkefna. Í tengslum við þetta mun Norræna ráðherranefndin leggja sérstaka áherslu á að tryggja skýrt og gagnsætt upplýsingastarf.
Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð viðurkenna að til er fjöldi stofnana innan borgarasamfélagsins sem hafa norrænan fókus, þar á meðal Norrænu félögin sem gegna mikilvægu hlutverki í hinu fjölþjóðlega norræna samstarfi. Nýtt fjármögnunarform Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir stofnanir borgarasamfélagsins merkir að frá árinu 2025 verður umsóknum háttað á annan hátt en fyrri ár.
Norræna ráðherranefndin flýtir ferlinu fyrir nýja fjárhagsliðinn þannig að stofnanir sem sækja um munu fá skilaboð um mögulegan stuðning eins fljótt og unnt er. Einnig mun fjárhagsliðurinn um rekstraraðstoð eftir fyrsta umsóknarferlið haustið 2024 verða endurskoðaður. Niðurstöðurnar verða kynntar MR-SAM og Norðurlandaráði með það fyrir augum að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi samtal um málaflokkinn.
Norðurlandaráð telur að Norrænu félögin og starfsemi þeirra skipti miklu máli og sé mikilvægur hluti norræns samstarfs og að tryggja þurfi þeim stuðning til grunnstarfsemi og viðeigandi verkefnastyrki til framtíðar.
Norðurlandaráð hefur í mörg ár beðið norrænu ríkisstjórnirnar um að koma á Norrænni ráðherranefnd um samgöngumál. Norðurlandaráð bendir á að stofnun Norrænnar ráðherranefndar um samgöngumál hafi aldrei verið mikilvægari en nú.
Samtali Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs um aukið norrænt samstarf á sviði samgöngumála mun haldið áfram á grundvelli þeirrar greiningar sem kynnt var á vordögum 2024.
Norðurlandaráð mun reglulega fá upplýsingar um hvernig ríkisstjórnir Norðurlanda vinna að því að styrkja samstarf sitt í samgöngumálum.
Að lokum er komist að samkomulagi um að núverandi og verðandi formennskulönd í Norrænu ráðherranefndinni haldi fundi með núverandi og næsta formennskulandi í Norðurlandaráði í lok árs 2024 til að upplýsa um yfirstandandi verkefni og ræða samstarfið á komandi ári.