Fara í innihald

Inngangsorð framkvæmda­stjóra

Með fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2025 er stigið stórt skref fram á við til að ná langtímamarkmiðunum um að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Fjárhagsáætlunin er nátengd pólitískum stefnumiðum og mikilvægt stjórntæki til að festa í sessi rétta og samræmda meðferð fjárveitinga frá Norrænu ráðherranefndinni.
Fjárhagsáætlunin byggist á markmiðum sem leiddi af umfangsmiklu pólitísku samráði og ráðherranefndirnar skilgreindu nánar í samstarfsáætlunum sínum fyrir tímabilið 2025–2030. Um er að ræða metnaðarfull markmið sem taka yfir öll málefnasvið Norrænu ráðherranefndarinnar og endurspegla víddina í samstarfinu, allt frá umhverfis- og loftslagsmálum til menningar, menntunar og rannsókna. Markmiðunum eru gerð skil í inngangsorðum hvers kafla um einstaka fagráðherranefndir í fjárhagsáætluninni.
Meðal stórra verkefna sem vert er að nefna eru aukin framlög til afnáms stjórnsýsluhindrana, styrkur til borgarasamfélagsins og þátttaka barna og ungmenna í norrænu samstarfi. Sem fyrr er lögð áhersla á þverlægt samstarf sviðanna um stafræna þróun og gervigreind, menntun og rannsóknir og menningu almennt. Þetta þverlæga samstarf þarf að efla til að nýta öll tækifæri og leysa úr vandamálum sem steðja að samfélögum okkar.
Til að tryggja gagn og gildi norræns samstarfs með þarfir framtíðarinnar í huga hefur sérstaklega verið hugað að því að verkefni, gömul og ný, sem hleypa á af stokkunum árið 2025, hvíli á traustum undirstöðum. Fjárhagsáætlunin er því afrakstur víðtæks samráðs milli mikilvægustu haghafanna, það er að segja samnorrænna stofnana, Norðurlandaráðs, borgarasamfélagsins, aðila vinnumarkaðarins og alls almennings.
Glöggir lesendur reka augun í að tillagan að fjárhagsáætlun er frábrugðin áætlunum fyrri ára. Breytingar hafa verið gerðar til að auka gagnsæi og skilvirkni í fjármálastjórn Norrænu ráðherranefndarinnar. Frá og með árinu 2025 verða því tekin í notkun ný tæki og tól til markmiða- og árangursstjórnunar sem leiða betur en áður í ljós hver ávinningurinn er af starfseminni með hliðsjón af settum markmiðum. Fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar verður því framvegis aðgengilegra og hnitmiðaðra rit auk þess sem kynning á markmiðum og árangri verður betur samræmd og skýrari.
Karen Ellemann,
framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar