Fara í innihald

Stefnan skapar samhengi


Til að gera þessa framtíðarsýn að veruleika þurfum við stefnu sem tryggir samfellu og langtímahugsun í starfi Norðurlandaráðs að afnámi stjórnsýsluhindrana. Þannig fáum við skýra átt að stefna í, eigum auðveldara með að forgangsraða verkefnum og tryggjum markvisst starf að því að efla hreyfanleika á Norðurlöndum. Einnig skilgreinir stefnan markmið okkar og aðferðir og sér til þess að markmiðin skili sér í aðgerðum.
Með öflugri stefnu getum við tekist á við áþreifanlegar áskoranir, tryggt pólitískan stuðning og náð fram varanlegum umbótum fyrir íbúa og fyrirtæki á gervöllum Norðurlöndum.

Sjö grundvallarréttindi fyrir íbúa og fyrirtæki á samþættum Norðurlöndum

Norðurlandaráð hefur skilgreint sjö mismunandi marksvið sem útgangspunkt í starfinu að því að skapa sem bestar forsendur fyrir frjálsri för fólks og fyrirtækja á Norður-löndum. Sviðin spanna þau grundvallarréttindi sem allir einstaklingar og fyrirtæki, sem búa og starfa yfir landamæri norrænu landanna, ættu að hafa á fyllilega samþættum Norðurlöndum. Þessi réttindi eru miðlæg í viðleitni Norðurlandaráðs til að ryðja úr vegi praktískum, lagalegum og stjórnsýslulegum hindrunum sem geta dregið úr hreyfanleika og hagvexti.
Rétturinn til athafna þvert á landamæri á sömu forsendum og þeir sem búa í viðkomandi landi
Rétturinn til að vinna og mennta sig hvar sem er á Norðurlöndum
Rétturinn til félagslegs öryggis og heilbrigðisþjónustu án stjórnsýsluhindrana
Rétturinn til skýrra reglna um skattamál
Rétturinn til að reka fyrirtæki þvert á landamæri með einföldum og skýrum reglum
Rétturinn til að geta ferðast frjálst og auðveldlega yfir landamæri norrænu landanna – einnig á viðsjárverðum tímum
Rétturinn til stafrænna lausna þvert á landamæri
Unnið skal á hverju marksviðanna sjö í samræmi við neðangreint:
Þekkingarbanki – Öflun og flokkun nauðsynlegra gagna fyrir stefnumótun, svo sem lýsinga á vandamálum, úttekta, svara við skriflegum fyrirspurnum og tillagna að hagnýtum lausnum. Þekkingarbankinn er framhald á og frekari þróun fyrri gagnagrunns um stjórnsýsluhindranir. Hann skal vera aðgengilegur öllum haghöfum, umfram allt þingmönnum Norðurlandaráðs og skrifstofum flokkahópanna, en einnig þingmönnum aðildarlandanna og fleirum.
Samstarfsnet – Þátttaka í samstarfsnetum með stofnunum, stjórnvöldum og aðilum borgarasamfélagsins sem stefna að sömu markmiðum. Á grunni samstarfsnetanna skulu aðgerðir samhæfðar, þekkingu miðlað, þróun mála fylgt eftir og stuðlað að markvissum breytingum í sameiningu.
Skýrir og mælanlegir vísar – Skilgreining mælanlegra vísa til að meta verkefni jafnt og þétt og fylgja þeim eftir. Með hjálp þessara vísa verður unnt að skrásetja framvinduna. Einnig má nýta vísana í alþjóðlegum samanburði. Með því að gera skoðanakannanir meðal almennings sköpum við grundvöll, byggðan á staðreyndum, til að meta umfang vandans og þörfina á aðgerðum hverju sinni.