Fara í innihald

Samstarfsaðilar okkar


Til að finna bestu lausnirnar og afnema stjórnsýsluhindranir verðum við að vera samstarfsfús, jákvæð og opin gagnvart umheiminum. Við lítum á samstarfsaðila okkar sem dýrmæta bandamenn í starfinu að samþættari Norðurlöndum, en höfum einnig skýrar kröfur og væntingar.
Markmið okkar er að byggja upp sterk tengsl og virkja til þátttöku fleiri aðila sem vinna að sama markmiði. Til að finna raunverulegar og varanlegar lausnir eigum við í samstarfi við breiðan hóp hagsmunaaðila:
  1. Nefndir og þingmenn á þjóðþingum landanna – Starf okkar að því að afnema stjórnsýsluhindranir og fyrirbyggja að nýjar hindranir skjóti upp kollinum útheimtir að þjóðþing landanna axli ábyrgð og líti til norrænna sjónarmiða í löggjafarstarfi sínu. Því er mikilvægt að efla samráðið milli Norðurlandaráðs og þjóðþinganna.
  2. Hagsmunasamtök og atvinnulíf – Fyrirtæki og faggreinasamtök leggja til verðmæta innsýn í þær praktísku áskoranir sem atvinnulífið stendur frammi fyrir varðandi starfsemi sem nær yfir landamæri. Með virku samráði við þessa aðila reynum við að finna lausnir sem skila árangri. Einnig eigum við í samstarfi við atvinnulífið um að takast á við hindranir á frjálsri för sem markaðurinn hefur skapað eða getur haft áhrif á.
  3. Upplýsingaþjónustur – Hinar þrjár landsbundnu upplýsingaþjónustur, Øresunddirekt, norsk-sænska landamæraþjónustan og landamæraþjónusta Svíþjóðar, Finnlands og Noregs, ásamt Info Norden, upplýsingaþjónustu Norrænu ráðherranefndarinnar, gegna lykilhlutverki í því að dreifa upplýsingum til íbúanna og fyrirtækja um réttindi þeirra og möguleika á Norðurlöndum, auk þess að greina og meta nýtilkomnar hindranir. Sú innsýn sem þær veita í praktísk úrlausnarefni er afar þýðingarmikil fyrir starf okkar.
  4. Norræna ráðherranefndin – Ráðherranefndin er okkar mikilvægasti pólitíski samstarfsaðili og tengiliður okkar við ríkisstjórnir norrænu landanna. Samstarfið við Stjórnsýsluhindranaráðið er sérlega mikilvægt því að það býr yfir mikilli þekkingu og reynslu og tengist öflugum samstarfsaðilum í löndunum. Svo er það óháð og gefur formlegu norrænu samstarfi verðmæta innsýn í sjónarmið utan þess. Með nánu samráði tryggjum við að málefni stjórnsýsluhindrana séu sett í forgang á æðsta stigi stjórnmálanna og að stjórnsýsluhindranastarfið verði samhæft milli Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, þar sem það á við. Við gegnum einnig rannsóknarhlutverki gagnvart starfi Norrænu ráðherranefndarinnar og sýnum með reglulegu millibili þann árangur sem unnist hefur í að bæta frjálsa för á viðeigandi málefnasviðum.
  5. Norrænu ríkisstjórnirnar – Með tilmælum, skriflegum fyrirspurnum, umræðum og pólitísku samráði þrýstum við á ríkisstjórnirnar að sýna árangur í málefnum frjálsrar farar á Norðurlöndum. Við fylgjumst með starfi ríkisstjórnanna og beinum gagnrýnum spurningum til viðeigandi ráðherra, bæði á þjóðþingum landanna og á þingum Norðurlandaráðs.