Hugsaðu þér Norðurlönd þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta farið um að vild, unnið og stundað viðskipti án skrifræðistengdra hindrana, þar sem lög og reglur landanna verða ekki fólki fjötur um fót í daglegum störfum þess og frjáls för þykir sjálfsögð.
Framtíðarsýn Norðurlandaráðs er að Norðurlönd verði fyllilega samþætt svæði þar sem þú getur búið, unnið og flutt milli landa án þess að rekast á landsbundnar hindranir sem hefta frelsi þitt og möguleika. Þegar þú ferðast milli tveggja landa vegna vinnu, stofnar fyrirtæki í öðru norrænu landi eða þarft að sækja heilbrigðisþjónustu yfir landamæri eiga kerfi landanna að virka greiðlega og einfalda daglegt líf þitt.
Hinir 87 þjóðkjörnu þingmenn Norðurlandaráðs eru fulltrúar 27 milljóna manna frá
norrænu löndunum átta. Verkefni okkar er að tengja pólitík við aðgerðir og tryggja að norrænt samstarf skili raunverulegum árangri – bæði fyrir íbúa og fyrirtæki.
Við leggjum áherslu á hagnýtar lausnir og umbætur til lengri tíma litið. Með því að skilgreina vandamál og eiga í samstarfi við stjórnmálafólk, yfirvöld og markaðinn getum við komið á sjálfbæru skipulagi þar sem markvisst er unnið að því að fyrirbyggja og takast á við stjórnsýsluhindranir. Markmið okkar er ekki aðeins að leysa stakar áskoranir, heldur að byggja upp Norðurlönd þar sem frjáls för er veruleiki allra.