Fara í innihald

Vegurinn fram á við


Samskipti okkar eru ábyrg og við nýtum okkur allar mögulegar stafrænar samskipta­leiðir. Samskiptin skulu vera auðkennileg fyrir markhópana.

Samskiptaþörfin, aðferðirnar og tæknin þróast í sífellu. Til að ná til markhópanna þarf að velja boðleiðir og samskiptatæki vandlega og það val þarfnast sífelldrar endurskoðunar.
Við vinnum náið með hagsmunaaðilum og öðrum samstarfsaðilum til að skapa gagnvirkni, hvetja til þátttöku og ná meiri útbreiðslu.
Samskiptastarfið er metið bæði hvað varðar gæði og magn. Gæðaúttekt á samskiptastarfinu fer fram í samræmi við pólitískar áherslur og samskiptamarkmið og er ætlað að greina áhrifin af forgangsverkefnum okkar.
Samskiptaáætlanir fyrir stærri verkefni verða samdar eftir því sem þörf er á. Nákvæmar leiðbeiningar um innri samskipti koma fram í sérstöku skjali. Leiðbeiningar um útgáfur er að finna í hönnunarstaðlinum. Kynning á alþjóðavettvangi, stafræn miðlun og málstefna eru skilgreind í öðrum sérstökum undirskjölum.