Framtíðarsýn okkar er að Norðurlönd verði orðin sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Til leiðbeiningar í því starfi hefur Norræna ráðherranefndin samþykkt framkvæmdaáætlun fyrir tímabilið 2021–2024 sem inniheldur tólf markmið fyrir græn Norðurlönd, samkeppnishæf Norðurlönd og félagslega sjálfbær Norðurlönd.
Mikilvægi þess að borgaralegt samfélag komi að starfinu til að tryggja gildi þess og gæði er ítrekað sérstaklega í markmiði númer 11 um að Norræna ráðherranefndin muni „veita borgaralegu samfélagi á Norðurlöndum, einkum börnum og ungu fólki, sterkari rödd, auka aðild þeirra að norrænu samstarfi og þekkingu á tungumálum og menningu frændþjóðanna“.
Norræna ráðherranefndin mun því bjóða frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum að viðra hugmyndir sínar og taka þátt í hinu norræna samstarfi í auknum mæli. Norræna ráðherranefndin á að vera opin og gagnsæ stofnun sem á erindi við borgaralegt samfélag hvað viðkemur upplýsingagjöf, úrræðum, ferlum og viðhorfi.
Sem lið í starfinu hafa norrænu samstarfsráðherrarnir ákveðið að koma á fót nýju líkani fyrir aðkomu borgaralegs samfélags að starfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Líkanið samanstendur af tveimur hlutum:
Hið norræna samstarfsnet frjálsra félagasamtaka samanstendur af fulltrúum landsbundinna og norrænna félagasamtaka. Samstarfsnetinu verður skipt í þrjá undirhópa með hliðsjón af hinum þremur stefnumarkandi áherslum framtíðarsýnarinnar: grænum Norðurlöndum, samkeppnishæfum Norðurlöndum og félagslega sjálfbærum Norðurlöndum.
Undanfarin ár hefur Norræna ráðherranefndin unnið að því að efla samstarf sitt við hið borgaralega samfélag. Samstarfsnetinu er ekki ætlað að koma í stað tengsla sem þegar hafa verið mynduð eða annarra samstarfsneta sem fagsviðin hafa stofnað til með frjálsum félagasamtökum. Markmiðið með hinu norræna samstarfsneti frjálsra félagasamtaka er að efla samstarfið við hið borgaralega samfélag enn frekar og gera það markvissara og samhæfðara fyrir framkvæmd Framtíðarsýnar okkar 2030 og framkvæmdaáætlunarinnar 2021–2024. Þetta markvissa samstarf stuðlar að því að Norræna ráðherranefndin geti tryggt gagnsæi og erindi starfsins vegna Framtíðarsýnar okkar 2030, auk þess að stuðla að aukinni aðkomu frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum að norrænu samstarfi í gegnum eflda samvinnu við Norrænu ráðherranefndina.
Hið norræna samstarfsnet frjálsra félagasamtaka er vettvangur slíkra samtaka til samvinnu við Norrænu ráðherranefndina og við önnur frjáls félagasamtök sem eiga aðild að samstarfsnetinu. Þróa á hlutverk samstarfsnetsins út frá þörfum og óskum sem greindar verða í sameiningu. Grundvöllur samvinnunnar á að vera framkvæmd Framtíðarsýnar okkar 2030 og framkvæmdaáætlunarinnar fyrir tímabilið 2021–2024.
Samvinna við Norrænu ráðherranefndina getur falið í sér samvinnu við allar ráðherranefndirnar (fagsviðin) og á öllum stigum pólitískrar ákvarðanatöku með upplýsingagjöf, samráði, samtali og aðkomu að starfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Viðkomandi fagsvið bera ábyrgð á að virkja samstarfsnetið þegar við á.[1]Eftir því hvaða svið um ræðir er hægt að virkja allt samstarfsnetið, eða að öðrum kosti hluta þess. Einnig getur samstarfsnetið útnefnt fulltrúa sinn í einstökum málum. Í þessu felst einkum eftirfarandi:
Samvinna hinna frjálsu félagasamtaka fer fram á vettvangi samstarfsnetsins með þekkingarmiðlun og samstarfi milli norrænu landanna. Starfið á að tengja við framkvæmd Framtíðarsýnar okkar 2030. Mótun þess, stýring og framkvæmd fer fram á vegum hins norræna samstarfsnets frjálsra félagasamtaka og undir stjórn verkefnastjóra samstarfsnetsins.
Samhæfing norræns samstarfsnets frjálsra félagasamtaka fyrir Framtíðarsýn okkar 2030 verður á höndum verkefnastjóra samstarfsnetsins. Þessi verkefnastjóri er fulltrúi landsbundinna eða norrænna frjálsra félagasamtaka og er valinn til starfans í útboðsferli haustið 2020. Hlutverk verkefnastjórans er að samhæfa starfsemi hins norræna samstarfsnets frjálsra félagasamtaka og hafa umsjón með því fjármagni sem Norræna ráðherranefndin veitir til starfseminnar. Fjárveiting Norrænu ráðherranefndarinnar vegna norræns samstarfsnets frjálsra félagasamtaka nemur alls tveimur milljónum danskra króna á tímabilinu 2021–2024.
Félagasamtök eru valin til þátttöku í hinu norræna samstarfsneti frjálsra félagasamtaka fyrir Framtíðarsýn okkar 2030 í opnu umsóknarferli með frjáls félagasamtök í norrænu löndunum sem markhóp, auk valferlis sem fram fer á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar á grundvelli tiltekinna viðmiða.
Umsóknarferlið fer fram á fyrsta ársfjórðungi 2021. Sótt er um aðild að hinu norræna samstarfsneti frjálsra félagasamtaka með rafrænu umsóknareyðublaði þar sem fulltrúar frjálsra félagasamtaka þurfa að gefa 1) upplýsingar um samtökin, 2) upplýsingar um valinn fulltrúa félagasamtakanna í norræna samstarfsnetinu og 3) rökstuðning fyrir því að velja eigi samtökin til þátttöku í samstarfsnetinu.
Valferlið fer fram á öðrum ársfjórðungi 2021. Norræna ráðherranefndin velur alls 40 fulltrúa í norrænt samstarfsnet frjálsra félagasamtaka fyrir Framtíðarsýn okkar 2030. Norræna ráðherranefndin metur umsóknir á grundvelli eftirfarandi viðmiða sem norrænu samstarfsráðherrarnir hafa sett:
Í valferlinu mun Norræna ráðherranefndin leitast við að skipting verði jöfn milli norrænu landanna og milli hinna þriggja stefnumarkandi áherslna Framtíðarsýnar okkar 2030. Að auki verður leitast við að ígrunda val fulltrúa á grundvelli fjölbreytileikasjónarmiða, hafa jafnt hlutfall karla og kvenna (s.s. 40–60% af hvoru kyni) auk æskilegrar aldursdreifingar (þannig að minnst 10% fulltrúa séu úr röðum ungs fólks). Það unga fólk sem tekur þátt í samstarfsnetinu á að vera fulltrúar ungmennasamtaka af einhverju tagi (sem starfa fyrir ungt fólk, með þátttöku þess og eru stofnuð af því). Ráðherranefndin telur æskilegt að ungmennasamtök tilnefni fulltrúa 28 ára eða yngri, þó með undanþágu fyrir samtök ungmenna með fötlun, þar sem forsendur slíkra samtaka séu aðrar og meðalaldur innan þeirra oft hærri en í öðrum samtökum.
Hið opinbera samráð gengur út á að borgaralegu samfélagi, atvinnulífi og öðrum aðilum á Norðurlöndum gefist færi á að leggja fram tillögur varðandi starf Norrænu ráðherranefndarinnar.
Vefgátt fyrir opinbert samráð verður opnuð á norden.org og þar verða birt drög að tillögum og skýrslum auk annars efnis sem tengist starfinu að Framtíðarsýn okkar 2030, ásamt eyðublaði sem nota má til að koma athugasemdum og sjónarmiðum á framfæri. Vefgáttin verður kynnt á vordögum 2021.
Þar birtir Norræna ráðherranefndin niðurstöður opinbers samráðs um norrænar samstarfsáætlanir og aðra starfsemi á vegum helstu áætlana og verkefna, sem dæmi. Samráðið má nýta á öllum stigum pólitískrar ákvarðanatöku. Fagsviðin bera ábyrgð á framkvæmd hins opinbera samráðs.
Markhópar þessa opinbera samráðs eru frjáls félagasamtök, almenningur, atvinnulíf, háskólasamfélagið, stjórnvöld og fleiri aðilar á Norðurlöndum. Með öðrum orðum er samráðinu ætlað að virkja enn breiðari hóp til þátttöku en hinu norræna samstarfsneti frjálsra félagasamtaka fyrir Framtíðarsýn okkar 2030. Enn fremur verður samráðsstarfið tengt hinu norræna samstarfsneti frjálsra félagasamtaka fyrir Framtíðarsýn okkar 2030 með því að sjá til þess að samstarfsnetinu verði alltaf gert kunnugt um það þegar ný innlegg um opinbert samráð birtast á norden.org.
PolitikNord 2021:718
ISBN 978-92-893-6972-5 (PDF)
ISBN 978-92-893-6973-2 (ONLINE)
http://doi.org/10.6027/politiknord2021-718
© Norræna ráðherranefndin 2021
Umbrot: Louise Jeppesen
Norræna samstarfið er eitt umfangsmesta svæðissamstarf í heimi. Samstarfið byggist á legu landanna, sameiginlegri sögu þeirra og menningu. Að samstarfinu koma Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.
Norræna samstarfið er pólitískt, efnahagslegt og menningarlegt og lætur muna um sig í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi. Löndin stuðla sameiginlega að öflugum Norðurlöndum í öflugri Evrópu.
Með norrænu samstarfi er hagsmuna svæðisins gætt og norræn gildi efld í hnattrænu samhengi. Sameiginleg gildi landanna styrkja stöðu Norðurlanda og skipa þeim meðal þeirra svæða í heiminum þar sem nýsköpun og samkeppnishæfni er mest.
Norræna ráðherranefndin
Nordens Hus
Ved Stranden 18
DK-1061 Kaupmannahöfn
www.norden.org
Lesa fleiri norræn rit: www.norden.org/is/utgafur