Sjálfbær þróun, jafnrétti og sjónarmið réttinda barna og málefna ungmenna eiga að vera rauður þráður í öllu starfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Samþætting þessara sjónarmiða (stundum kölluð „mainstreaming“) er forsenda þess að ná markmiði framtíðarsýnar Norrænu ráðherranefndarinnar um að Norðurlönd verði „sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030“.
Í framkvæmd þýðir þetta að sjálfbær þróun, jafnrétti og sjónarmið réttinda barna og málefna ungmenna eiga að móta allt starf Norrænu ráðherranefndarinnar með kerfisbundnum hætti. Þessi sjónarmið skal hafa til hliðsjónar á öllum stigum undirbúnings, ákvarðanatöku, framkvæmdar og mats á starfsemi. Ábyrgðin liggur hjá því starfsfólki og aðilum sem koma vanalega að starfinu.
Í þessari stefnu er gerð grein fyrir forsendum þess að framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar (Framtíðarsýn okkar 2030) um grænni, samkeppnishæfari og félagslega sjálfbærari Norðurlönd verði að veruleika. Þær forsendur hvíla á því að starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar sé sjálfbær, á jafnréttisforsendum, öllum opin, að hún fari fram með þátttöku fulltrúa ólíkra hópa og sé aðgengileg. Í stefnunni er einnig lögð áhersla á afstöðu í anda alþjóðlegra skuldbindinga á borð við heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun, Kvennasáttmála SÞ og Barnasáttmála SÞ – afstöðu sem er forsenda þess að ná norrænum sjálfbærnimarkmiðum um að enginn verði skilinn útundan.
mynd: UNSPLASH.COM, GLOBALGOALS.ORG | ||
Hin þrjú þverlægu sjónarmið sem samþætta á í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar eru sjálfbær þróun, jafnrétti og sjónarmið réttinda barna og málefna ungmenna. Hér er kynnt í stuttu máli hvað felst í því að samþætta þessi sjónarmið í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar.
Þessi ólíku sjónarmið skarast bæði og bæta hvert annað upp. Sjálfbær þróun er regnhlífarhugtak sem nær einnig yfir jafnréttismál og tækifæri barna og ungmenna til að auka kunnáttu sína og færni.
Sé litið til sjálfbærrar þróunar er vistfræðilega sjálfbær þróun í brennidepli á Norðurlöndum, en við stöndum nú frammi fyrir miklum áskorunum á því sviði í tengslum við ósjálfbæra neyslu og framleiðslu, loftslagsbreytingar og vandamál tengd líffræðilegri fjölbreytni. Í þeirri baráttu þarf stöðugt að hafa sjónarmið félagslegrar og efnahagslegrar sjálfbærni til hliðsjónar svo að hægt sé að tala um sjálfbærni í reynd.
Hinn félagslegi þáttur sjálfbærrar þróunar felur í sér skýrt sjónarmið um fjölbreytni þar sem meðal annars þarf að líta til afleiðinga af ákvörðunum og þátttöku ólíkra þjóðfélagshópa út frá kyni, kynvitund eða kyntjáningu, aldri, fötlun, uppruna, trúarbrögðum, kynhneigð og félagslegum og efnahagslegum bakgrunni. Þegar hafa á til hliðsjónar jafnrétti og sjónarmið réttinda barna og málefna ungmenna er mikilvægt að muna að konur og karlar, drengir og stúlkur eru ekki einsleitir hópar. Það að taka mið af greiningum og mati á mismunandi valdakerfum getur haft úrslitaþýðingu í starfinu.
Hin þverlægu sjónarmið eru innbyrðis háð hvert öðru að ýmsu leyti. Til dæmis er mikilvægt út frá öllum þremur þverlægu sjónarmiðunum að líta til hinna mismunandi lífskjara sem drengir og stúlkur búa við. Norrænu forsætisráðherrarnir hafa í sameiningu bent á og viðurkennt mikilvægi jafnréttis sem grundvallarforsendu þess að unnt verði að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.[1]www.norden.org/sv/node/37458
Auk þess að vera sjónarmið sem stöðugt skal samþætta í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar eru sjálfbær þróun, jafnrétti og réttindi barna og málefni ungmenna þýðingarmiklir málaflokkar í norrænu samstarfi. Mikilvægt er að hafa í huga að samþætta sjónarmiðin í öllum tilfellum – líka í verkefnum sem þegar eru á sviði sjálfbærrar þróunar, jafnréttis eða réttinda barna og málefna ungmenna eða hafa börn og ungmenni sem sérstakan markhóp.
Mikilvægi þess að líta til þessara sjónarmiða á breiðum grundvelli í starfi fagsviða og stofnana er því undirstrikað í þessari stefnu.
mynd: GLOBALGOALS.ORG, unsplash.com | ||
Samþætting sjálfbærrar þróunar, jafnréttis og sjónarmiða réttinda barna og málefna ungmenna í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar felur í sér að greina sitt eigið starf stöðugt út frá þessum sjónarmiðum og taka ákvarðanir út frá þeirri greiningu. Í framkvæmd getur þetta átt við undirbúning verkefnis eða ráðstefnu, ákvarðanir um forsendur styrkveitinga og útdeilingu styrkja, mótun verkefna fyrir samstarfsaðila eða mat á árangri og áhrifum herferðar eða verkefnis. Meginábyrgð á framkvæmd stefnunnar er á herðum framkvæmdastjórans og ráðherranefndanna. Ábyrgð á því að samþætta sjálfbæra þróun, jafnrétti og sjónarmið réttinda barna og málefna ungmenna í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar liggur hjá öllum sem starfa innan Norrænu ráðherranefndarinnar eða í umboði hennar, óháð starfssviði.
Ábyrgðin tekur til
Samþætting sem grundvallarregla byggir á þeirri hugmynd að fólk sem kann sitt fag og þekkir eigin verkferla sé best til þess fallið að greina þau sjónarmið sem máli skipta fyrir sjálfbæra þróun, jafnrétti og sjónarmið réttinda barna og málefna ungmenna á viðkomandi starfssviði.
mynd: norden.org, unsplash.com | ||
Starfi Norrænu ráðherranefndarinnar á grundvelli stefnunnar verður fylgt eftir og það metið reglulega. Norræna ráðherranefndin gefur norrænu samstarfsráðherrunum (MR-SAM) og Norðurlandaráði skýrslu um framvindu starfsins á grundvelli stefnunnar annað hvert ár. Stefnan verður uppfærð eftir þörfum fjórða hvert ár í samræmi við aðgerðaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir Framtíðarsýn okkar 2030.
Frekari stuðning varðandi samþættingu má ávallt fá hjá ráðgjöfum innan málaflokka sjálfbærrar þróunar, jafnréttis og málefna barna og ungmenna. Einnig geta ráðgjafarnir bent á frekara stuðningsefni og úrræði sem komið geta að gagni í starfinu.
mynd: Unsplash.com | ||
PolitikNord 2020:718
ISBN 978-92-893-6749-3 PDF
ISBN 978-92-893-6750-9 ONLINE
http://dx.doi.org/10.6027/politiknord2020-718
© Norræna ráðherranefndin 2020
Umbrot: Erling Lynder och Louise Jeppesen
Norræna samstarfið er eitt umfangsmesta svæðissamstarf í heimi. Samstarfið byggist á legu landanna, sameiginlegri sögu þeirra og menningu. Að samstarfinu koma Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð auk Álandseyja, Færeyja og Grænlands.
Norræna samstarfið er pólitískt, efnahagslegt og menningarlegt og lætur muna um sig í evrópsku og alþjóðlegu samstarfi. Löndin stuðla sameiginlega að öflugum Norðurlöndum í öflugri Evrópu.
Með norrænu samstarfi er hagsmuna svæðisins gætt og norræn gildi efld í hnattrænu samhengi. Sameigin-leg gildi landanna styrkja stöðu Norðurlanda og skipa þeim meðal þeirra svæða í heiminum þar sem nýskö-pun og samkeppnishæfni er mest.
Norræna ráðherranefndin
Nordens Hus
Ved Stranden 18
DK-1061 Kaupmannahöfn
www.norden.org
Lesa fleiri norræn rit: www.norden.org/is/utgafur
Samþætting sjálfbærrar þróunar, jafnréttis og sjónarmiða réttinda barna og málefna ungmenna er forsenda þess að uppfylla framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar um
að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði
heims árið 2030.